Geimverur í Arizona

Republican alienÞau tíðindi bárust frá Arizona í dag að fyrrum ríkisstjórinn Fife Symington sagðist vera fullviss um að undarleg ljós sem sáust yfir Phoenix borg árið 1997 hafi í raun verið "geimskip frá öðrum hnetti".

Aldrei áður hefur maður sem gegnt hefur svo háu embætti innan bandaríska stjórnkerfisins látið slíkt út úr sér.  Symington sem var ríkisstjóri Arizona frá 1990-1997 fyrir hönd Repúblikanaflokksins sagðist sjálfur hafa orðið vitni af þessum fljúgandi furðuhlut og sagði það útilokað að þetta hefðu verið blys frá herflugvélum.  Orðrétt sagði hann "It was enormous and inexplicable. Who knows where it came from? A lot of people saw it, and I saw it too. It was dramatic. And it couldn't have been flares because it was too symmetrical. It had a geometric outline, a constant shape."

Hann sagðist ekki hafa getað sagt frá þessari upplifun sinni á meðan hann gegndi embætti því hann hefði ekki viljað skapa ofsahræðslu meðal íbúanna og óttaðist líka að vera talinn brjálaður.  Hann hafi þó fyrirskipað rannsókn á málinu, en flugherinn hefði ekki reynst mjög samstarfsfús.

Það sem gefur áliti Symingtons ef til vill meira vægi er að hann þjónaði í flughernum í Víetnam stríðinu og ætti því að þekkja muninn á ljósum frá flugvél og einhverju allt öðru...

Hér má sjá frétt CNN um málið


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

'Eg sá nú ýmisleg skrítin ljós á himni á vetrarhimnininum, sem krakki fyrir vestan. Einu sinni blossa svo mikinn að það varð bjart sem að degi í augnablik. Það er margt unarlegt til og vafalítið getur verið um slík för að ræða í bland við náttúruleg ljósfyrirbrigði og lygasögur samsæriskenningasmiða. 

Hef heyrt fólk, sem ég efaði ekki eitt augnablik, lýsa svona close encounter.   Fullorðin hjón og vammlaust fólk.

Við strákarnir þýddum kvikmyndatitilin "Close encounter of the third kind." sem "Klósettkanturinn á þriðju kindinni."

Jón Steinar Ragnarsson, 23.3.2007 kl. 01:56

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Klósettkanturinn á þriðju kindinni!!!    Hehe...þessi er nú með þeim betri!

Eigum við ekki bara að vona að blessaðar geimverurnar séu að fylgjast með okkur   Svo lengi sem sögurnar um "anal próbanna" séu rangar...erhm..

Þegar ég var í gaggó og horfði á hvern einasta X-Files þátt þá gerðist ég líka meðlimur í FÁFFH (Félag Áhugamanna um Fljúgandi Furðu Hluti) sem stofnað var af snillingnum honum Magnúsi Skarphéðinssyni.  Fínn kall...jafn mikill húmoristi og Össur bróðir hans.

Róbert Björnsson, 23.3.2007 kl. 03:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.