Höfðingjarnir hér í Qatar gestrisnari en Framsóknar-plebbarnir í Reykjavík

Þar sem þýska sjónvarpið sýnir ekki frá HM í handbolta í þetta skiptið var ekki um annað að ræða í stöðunni en að hoppa um borð í "einkaþotuna" og mæta bara á leikinn.

Áðan heimsótti ég listasafn "múslamistanna" (Museum of Islamic Art) en þar eru Íslenskir villutrúarmenn og vantrúarseggir hjartanlega velkomnir eins og sjá má.  Hér er yndælisfólk, gestrisið og þægilegt á allan máta.  Bestu kveðjur frá Doha! :)

10922534_10101264723850621_4630747064733399487_n10943754_10101264709649081_4903727277041838783_n10940477_10101262748394451_3461267825819893146_n


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hefur náttúrulega séð margar fallegar myndir af spámanninum málaðar af múslimum fyrir múslimi. T.d. eins og þessa?:

file:///C:/Users/Public/Pictures/Sample%20Pictures/10929195_1530504817210930_8363408631998977562_n.jpg

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 18.1.2015 kl. 15:03

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Uss, þetta er ekkert nýtt - svona er alltaf tekið á móti mér erlendis.  :)
Reyndar var svolítið vesen hjá mér hérna í den í Indónesíu.  Þar voru engin svona flögg og vegabréfaverðirnir í þvísa múslimska landi höfðu aldrei séð íslenskan passa og Íslandið sjálft var ekki á skrá hjá þeim.  Þannig upphófst heilmikil samvinna þarna í landamæravörslunni þar sem ég kenndi þeim á heimskortið - sem þeir fengu svo staðfest með símtali við eitthvert ráðuneytið sitt.
Enn lifir þó í minningunni hvað þessir verðir voru glaðir með niðurstöðuna og hvað þeir buðu mig síðan innilega velkomna í sitt land! 

Kolbrún Hilmars, 18.1.2015 kl. 17:24

3 identicon

Mikið rosalega misstókst þessir tengja hjá mér, hér kemur önnur tilraun: http://en.wikipedia.org/wiki/Depictions_of_Muhammad#mediaviewer/File:Medieval_Persian_manuscript_Muhammad_leads_Abraham_Moses_Jesus.jpg

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 18.1.2015 kl. 17:51

4 identicon

Sæll Róbert æfinlega - sem og aðrir gestir þínir !

Uss / svei attann:: Róbert minn.

Handklæðahausarnir í Katar: eru NÁKVÆMLEGA sönu slúbbertarnir - sem og ''Framsóknar'' hyskið hérlendis: sumir þeirra stunda þrælahald opinberlega / hinir pukrazt aftur móti, með það.

Að öðru leyti: sömu óþverrarnir, Róbert minn.

Með beztu kveðjum sem jafnan - af Suðurlandi /

e.s. Og - hinar beztu kveðjur sem oftar: til Rennismíða meistarans mæta, á Selfossi / sem endranær
 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.1.2015 kl. 20:34

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Róbert, þú ættir að kynna þér hvernig þessir "höfðingjar" fara með verkafólk frá Afríku og Asíu áður en þú alhæfir meira.

Wilhelm Emilsson, 19.1.2015 kl. 12:41

6 Smámynd: Róbert Björnsson

Meðferðin á aðfluttu verkafólki er auðvitað viðbjóðsleg.  En hvernig fóru okkar ágætu "höfðingjar" með kínversku verkamennina sem byggðu Kárahnjúkavirkjun svo dæmi sé tekið?  

Takk fyrir kveðjurnar Óskar Helgi!  Rétt hjá þér, allsstaðar fyrirfinnast þessir bévuðu slúbbertar.  

Róbert Björnsson, 20.1.2015 kl. 10:09

7 Smámynd: FORNLEIFUR

AlThani gátu kannski frætt þig um hvernig þeir notuðu Sigga Einars til að koma fé til Hamas og Isil?

FORNLEIFUR, 9.2.2015 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband