Af hverju gamlir Benzar?

benz E280Hvernig týmdu þessir asnar að sprengja upp tvo klassíska Mercedes Benz bila?  Hefði ekki verið nær að nota Rover eða Vauxhall?

Svo þurftu þeir endilega að velja gamla 124 boddíið...þannig að héðan í frá á maður eftir að vekja grunsemdir á sínum heittelskaða ´94 E-420 hvar sem maður fer og eflaust er maður nú kominn á watch-lista FBI yfir útlendinga sem keyra um á gömlum Benzum. Woundering

IMG_0096


mbl.is Önnur sprengja fannst í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver segir að hryðjuverkamenn geti ekki haft góðan smekk

Ég man eftir þér á Sunnuveginum, kom stundum í heimsókn og fékk lánað einhverja leiki hjá þér. Það voru m.a. Rebel Assault og 7th guest. Þá var ég nýbúinn að kaupa 2x CD-ROM í tölvuna og þótt manni mikið tilkoma

Einar Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 23:11

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Blessaður Einar og takk fyrir innlitið!

Já, ég man eftir þessu...þetta hlýtur að hafa verið ca. ´92-´93.  CD-ROM-ið var sko þvílík bylting og þessir leikir alveg ótrúlegir á þeim tíma.  Það var gaman að vera tölvunörd í gamla daga...486 maskínurnar með gamla góða DOS-inu...ahh...those were the days.

Vona að foreldrar þínir hafi það gott, mamma þín kenndi mér í Gaggó og pabbi þinn kenndi mér stærðfræði í FSu.

Róbert Björnsson, 29.6.2007 kl. 23:51

3 identicon

Þetta voru góðir tímar og sakna ég gamla góða DOS. Í dag getur hver sem er farið í tölvu og blammerað einhverri vitleysu út á netið. Maður þurfti þó í gamla daga að kunna eitthvað fyrir sér.

Mamma og pabbi hafa það mjög gott þakka þér og eru enn við gamlar iðjur.

Ég hitti einmitt pabba þinn nokkrum árum seinna eftir þessi tölvuleikjaævintýri okkar og fékk hann til að plana head á bíl sem ég var að garfa í. Hann vildi nú ekki taka mikið fyrir þá vinnu en mér tókst að pranga upp á hann nokkrum seðlum.

Einar Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 10:09

4 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Það er algjör synd að fara svona með gamla flotta bíla væri best að enginn væri að sprengja neitt reyndar

Margrét St Hafsteinsdóttir, 30.6.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband