Hvað verður þá um AA mílurnar mínar?

Hannes Smárason?Nú ætla verðbréfaguttarnir hjá FL grúpp að fara að kenna stjórn American Airlines alvöru Íslenska flugrekstrarfræði, enda sennilega ekki vanþörf á. 

Eins og segir í tilkynningu frá Hannesi Smárasyni: „FL Group hefur umfangsmikla reynslu af rekstri flugfélaga og við teljum að stjórn AMR beri að leita nýrra leiða til að auka verðmæti félagsins. Með því að aðskilja Vildarklúbb félagsins verður hægt að minnka skuldir og auka virði AMR.“

Það er nefnilega það.  Vonandi hlusta stjórnarmenn elsta og stærsta starfrækta legacy flugfélags Bandaríkjanna, sem fyrir örfáum árum létu sig ekki muna um að taka yfir rekstur TWA, flugfélagsins sem Howard Hughes stofnaði í gamla gamla daga, á nýríka íslenska braskara sem helstu afrek hingað til hafa verið að kaupa Lettneskt ríkisflugfélag og Tékkneskt lággjaldaflugfélag.  Jú, því stjórnarmenn FL Grúpp hafa nefnilega umfangsmikla reynslu af rekstri flugfélagaGetLost  Please!   Næst heyrir maður að Jóhannes í Bónus kaupi 8% hlut í Wal-Mart og fari að kenna Kananum hvernig eigi að selja kjötfars.  Gimme a break!

Nú er ég ekki að halda því fram að AA sé vel rekið flugfélag, langt frá því, og það sama má segja um hin gömlu legacy flugfélögin sem eftir eru; United, Delta og Northwest  Einungis Continental og US Airways virðast vera að ná að rétta eitthvað úr kútnum í harðri samkeppni við lággjaldaflugfélögin Southwest og JetBlue.  En einhvernveginn efast ég um að Icelandair módelið virki fyrir AA.

AAdvantage-logoAnyway...fyrir nokkrum árum flaug ég svolítið oft með TWA (Trans World Airlines) og gekk í vildarklúbbinn og átti orðið einhverjar mílur hjá þeim sem svo fluttust yfir í AAdvantage þegar AA tók yfir.  Hvað ætli verði af þessum mílum mínum ef Hannes nær sínu framgengt?  Kannski þær færist þá yfir í vildarklúb Icelandair?  GetLost  Það væri nú ekki nema sanngjarnt.

Annars held ég að FL grúpp ætti að vara sig á of-fjárfestingum í illa stæðum flugfélögum sem þeir halda að þeir geti snúið við eins og ekkert sé með því að fara að reka þau eins og Icelandair.  Ef þeir fara ekki varlega gæti endað fyrir þeim eins og Swissair sáluga.

Hér má sjá stutta ritgerð sem ég skrifaði einu sinni um endalok Swissair. 


mbl.is FL Group hvetur stjórn AMR til að leita leiða til að auka virði félagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Snilldar pistill hjá þér.

Sævar Einarsson, 27.9.2007 kl. 22:26

2 identicon

Its futile to cry over lost miles ;)
En comon íslensku strákarnir eru í allt annari vídd en menn úti, við erum í íslensku efnahagsundri og hlýtum ekki sömu lögmálum og aðrir. ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 20:46

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Drekkum í dag og deyjum á morgun.  There is no tomorrow! 

Þetta verður fróðlegt að sjá og fylgjast með.  Við erum líka að sýna Dönum og Bretum, hvernig á að reka verslanir og framleiða TV dinnera.  Hví ekki að taka Ameríkana í læri í flugrekstri?

Jón Steinar Ragnarsson, 2.10.2007 kl. 00:31

4 Smámynd: Róbert Björnsson

Já, víkínga eðlið er lífsseigt.    Íslendingar mega eiga það að ekkert verkefni er of stórt og hefur það viðmót sjálfsagt haldið tórunni í okkur í gegnum aldirnar.

Róbert Björnsson, 2.10.2007 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband