Hátíðartónleikar í Chicago

Chicago skylineNú eru réttar tvær vikur í kalkúnadaginn mikla (thanksgiving) og ætlunin er að halda uppá herlegheitin í Chicago þetta árið. 

Ástæðan fyrir þessu flakki til "the Windy City" er sú að sjálft átrúnaðargoðið mitt, maestro John Williams sjálfur, mætir með tónsprotann og ætlar að stjórna Chicago Symphony Orchestra á sérstökum hátíðartónleikum.  Ég komst á samskonar tónleika árið 2003 og gat ekki látið tækifærið frá mér renna um að endurupplifa þann viðburð.  Það er heldur ekki víst að manni gefist annað tækifæri, því þrátt fyrir að vera enn í fullu fjöri er karlinn nú kominn hátt á áttræðisaldur og samt er hann þessa dagana einmitt að semja tónlistina við nýju Indiana Jones myndina sem kemur út í vor.

Chicago Symphony HallPrógrammið er sem hér segir:

Williams -   Fanfare for a Festive Occasion
Williams -   Tributes! (for Seiji Ozawa)
Williams -   The Five Sacred Trees (Bassoon Concerto)
Williams -   Four Pieces from American Journey (written for the 2002 Winter Olympics)
Williams -   Balloon Sequence and Devil's Dance from The Witches of Eastwick
Williams -   Sayuri’s Theme from Memoirs of a Geisha
Williams -   Adventures on Earth from E.T. (The Extra-Terrestrial)

 

En það er fleira á dagskránni en tónleikarnir.  Góðvinur minn sem ætlar með mér er mikill áhugamaður um arkitektúr og þess vegna ætlum við að koma við á fyrrum heimili og vinnustofu hins heimsþekkta arkitekts Franks Lloyd Wright og skoða nokkrar byggingar eftir hann sem standa á Chicago svæðinu.  Þá ætlum við sömuleiðis að koma við í Museum of Science and Industry en þar er í gangi sýning sem heitir "Star Wars: Where Science Meets Imagination" W00t

Það má fynna margar perlurnar á youtube og hérna er gamall BBC þáttur frá árinu 1980 sem fjallar um John Williams þar sem er m.a. fylgst með honum semja tónlistina við The Empire Strikes Back.  Því miður eru þeir búnir að taka út embed kóðann sem fylgir þessum klippum þannig að ég get ekki sýnt þetta hér á síðunni og verð bara að linka á þá:  Þátturinn er í sex hlutum, hér er fyrstiannar, þriðji, fjórði, fimmti og sjötti hluti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvað, á að fá sér eina feita til þess að auka á upplifunina ;)

Skemmtu þér vel vinur!

DoctorE (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 22:46

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehehe...oh man...það væri nú sannarlega kannski margt vitlausara!

Takk fyrir.

Róbert Björnsson, 9.11.2007 kl. 23:52

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mátti til með að benda þér á ÞENNAN viskubrunn.  Liggur of vel við höggi til að láta fram hjá sér fara.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.11.2007 kl. 10:19

4 Smámynd: Róbert Björnsson

Hahaha...já, hann er góður þessi!   Gaman að svona karakterum.

Róbert Björnsson, 11.11.2007 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband