Mega Jug

Eitt af því sem ég elska við Bandaríkin er óhefluð neyslumenningin!  Ja, ok við skulum kalla þetta svona love/hate relationship... þó manni ofbjóði ruglið á köflum, kemst maður ekki hjá því að taka þátt í þessum öfgafulla lífsstíl.  Þó svo maður fái stundum vott af samviskubiti yfir hegðun sinni...þá er maður fljótur að réttlæta neysluna fyrir sjálfum sér og kaupir næsta skammt.  Neyslan er nefnilega rétt eins og hvert annað fíkniefni...ávanabindandi.  Virkur neytandinn neitar að horfast í augu við vandamálið eins lengi og hann kemst upp með það...þangað til í óefni er komið.  En jafnvel þó maður geri sér grein fyrir ástandi sínu...er hægara sagt en gert að breyta hegðunarmynstrinu.  Mér hefur ekki tekist það ennþá.

kjúlliEin augljósasta birtingarmynd bandarísku neyslumenningarinnar kristallast best í skyndibitafæðinu.  Bandaríkin eru himnaríki (eða helvíti) latra fitubolla eins og mín!  Við heimtum, og fáum...stundum óumbeðið...meira, stærra, ódýrara og fljótara...beint í bílinn...án nokkurar fyrirhafnar.  Stundum er þessu ýtt niður kokið á manni, sárasaklausum og veikgeðja neytandanum án þess að maður fái hönd við reist.  Hver stendst mátt markaðsaflanna og auglýsinganna?

Ætli ástæðan fyrir þessu röfli mínu nú sé ekki sú að áðan ákvað ég að koma við á KFC...aldrei þessu vant.  Það var heitt og ég var þyrstur og bað um "large Pepsi" með matnum.  Svona til skýringar, þá er "large" hér venjulega 32 oz. (tæpur líter)...á meðan á íslandi færðu oftast ekki nema hálfan líter þegar þú biður um stóra kók.  Erhem...imagine my surprise þegar mér er rétt "The Mega Jug"... jú sí...á KFC þýðir "large" víst núorðið hálft gallon!!!  Tæpir 2 lítrar...í glasi með sogröri. (sjá mynd)

mega gosSatt að segja brá mér örlítið þegar ég fékk þetta ferlíki í hendurnar...mér blöskraði jafnvel...en hvað get ég sagt...ég stakk rörinu uppí mig og byrjaði að sjúga...og sjúga...  Nú ligg ég afvelta með smá samviskubit...búinn með gosið og ennþá þyrstur.

Nú hefði ég svosem getað farið á Subway og drukkið vatn með... en hvað hefði verið varið í það?  Ok, ég er fíkill... so what?  Þetta var mitt val...ekki satt?  Það er mitt að ákveða hvort ég vil fremja hægfara sjálfsmorð með mataræði mínu... það er ekki KFC að kenna...beinlínis.

Nú rétt í þessu sá ég sjónvarpsauglýsingu frá Wendy´s...ókeypis stækkun í supersize eftir kl. 9 á kvöldin...sennilega verið að targeta alla vesalings stónerana sem eru að horfa á Colbert Report og eru komnir með the munchies... af hverju mega þessi grey ekki kaupa jónurnar sínar á Wendy´s líka?  Það deyja jú mun fleiri árlega sökum mettaðra fitusýra en kannabis-neyslu...(like 400,000 to zero samkvæmt tölum CDC).

Nú verð ég að viðurkenna að þrátt fyrir allt er ég frjálshyggjumaður í þeim skilningi að ég er fylgjandi því að einstaklingar hafi óskertan rétt til að ráða yfir eigin líkama, þ.m.t. hvað viðkomandi lætur ofan í sig, hvort sem það er hálft gallon af Pepsi, áfengi, tóbak eða önnur vímuefni...svo lengi sem neyslan skaðar ekki aðra.  En staðreyndin er samt sú að það ráða ekki allir við að bera ábyrgð á eigin heilsu...því miður.  Engu að síður á valið að vera okkar...ekki Vinstri Grænna!

...

Annars held ég að ég prófi bara megrunarpillurnar sem ég sá í sjónvarpsmarkaðnum áðan...Lypozine...Only $39.99..."guaranteed to loose 25 lbs in 8 weeks...without change in diet or excerzise"!  Call now and get your second bottle for free!   Too good to pass... hvar er kredit-kortið?  Whistling    Eða á maður að spara aurinn og safna fyrir laxeringu og stólpípumeðferð hjá Jónínu Ben?  


mbl.is Þriðji hver íbúi of feitur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Skemmtilega skrifað Róbert. Kannast svo vel við þetta. Gengur allt út á Super Size Me hérna í Bandaríkjunum og ekki bætir það að Ameríkanar kunna að gera góðan og ódýran mat 

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 18.7.2008 kl. 02:17

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Já Erna, þetta er lúxusvandamál ...ef maður væri staddur á íslandi væri maður væntanlega að kvarta yfir háu matarverði og hversu allt er skorið við nögl þarna uppfrá...vanþakklæti er þetta í manni alltafhreint hehe.

Róbert Björnsson, 18.7.2008 kl. 09:08

3 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Er úrvalið í heilsumarkaðinum ekki gífurlegt á móti? Ég á erfitt með að trúa að GALLÓN sé ætlað fyrir einstakling, þetta fylgir fjölskyldutilboðum hérna. Frábært færsla, skemmtilegur lestur.

Róbert Þórhallsson, 19.7.2008 kl. 00:55

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er nú þegar byrjað að spyrja mann hvort maður vill tvöfalda skammtinn fyrir hálvirði í viðbót. Þetta er oft svo agressíft að ég hætti bara alfarið við að kaupa nokkuð. Ógeðslegt í einu orði sagt.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.7.2008 kl. 02:04

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Menn eiga að sjálfsögðu að hafa frjálst val að gefnu samþykki vinstri grænna. Hvað annað?

Jón Steinar Ragnarsson, 19.7.2008 kl. 02:06

6 Smámynd: Róbert Björnsson

Nafni:  Jú, vissulega er líka gott úrval af heilsusamlegri mat hérna og það ódýrt á okkar mælikvarða...en engu að síður er hitt bæði sýnilegra, fljótlegra og mun ódýrara enda er svo komið að offita er orðin mun algengari meðal þeirra fátækari.  Auðvitað hefur maður alltaf val... en það má samt segja að "markaðurinn" ýti undir ákveðið neyslumynstur sem er kannski hollara fyrir bankareikninga stórfyrirtækjanna heldur en heilsu almennings.  Það gengur allt út á magn fremur en gæði.

Jón Steinar:  Já, þetta getur verið pirrandi...aldrei bjóða þeir manni að minnka skammtinn fyrir smá afslátt hehe...það kæmi sér kannski vel fyrir einhverja í kreppunni.   

Haha...Vinstri Grænir eru flestir hverjir vel meinandi prýðisfólk...en inná milli leynist Marteinn Mosdal týpan...þessi sem þarf að hafa endalaust vit fyrir fólki.   svo er  merkilegt hvað getur verið stutt á milli mestu íhalds-hægri-tittanna og afturhalds-komma-tittanna... sama tóbakið.

Róbert Björnsson, 19.7.2008 kl. 04:53

7 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Svona á þetta að vera. Nóg af öllu, óhollu, girnilegu og góðu!!!

U.S.A ROCKS ! 

Siggi Lee Lewis, 24.7.2008 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband