Ike hlífir Key West

southernmost_point_key_west.jpgEf Paradís er í Bandaríkjunum (haha!) þá er hún á Key West undan ströndum Flórída!  Þrátt fyrir að liggja á versta mögulega stað í vegi fyrir fellibyljum sem herja á svæðinu á hverju ári hefur Key West sloppið ótrúlega vel í gegnum tíðina...sérstaklega með tilliti til þess að hæsti punktur eyjarinnar er heila 6 metra yfir sjávarmáli.

Reyndar þarf oft að rýma eyjarnar (Florida Keys eyjaklasann) í varúðarskyni en þangað liggur bara einn einbreiður vegur (hwy 1) yfir ótal brýr, þar á meðal eina 7 mílna langa.  Það er svolítið skrítið að keyra þarna niðureftir, því maður er í raun að keyra lengst út í ballarhaf.  Key West, syðsta eyjan í klasanum er um 160 mílur suður af Miami.

Key West er raunar syðsti oddi Bandaríkjanna (fyrir utan Hawaii) og eru aðeins 90 mílur yfir til Havana á Kúbu.  Castro er því nálægasti "höfðinginn" á svæðinu, því Governor Jeb Bush er lengst upp í Tallahassee, um 650 mílum norðar.  Það þarf því ekki að koma á óvart að það er mikið um Kúbversk "áhrif" á menninguna á Key West.

Stemmningin í gamla bænum og á Duval Street er engu lík, stanslaus hamingja, má kannski helst líkja við French Quarter hverfið í New Orleans. Götulistamenn eru á hverju horni og suðræn tónlistin ómar stöðugt á meðan maður horfir á sólina setjast í Mexíkó-flóa.  Picture perfect.

Frægasti íbúi eyjarinnar í dag er tónlistarmaðurinn Jimmy Buffet (sem kallar eyjuna reyndar Margaritaville í lögum sínum).  Annars búa um 25 þúsund manns á eyjunni að staðaldri auk fjölda túrista.  Eyjan hefur í gegnum tíðina dregið að sér ýmis konar bóhema og fríþenkjandi fólk og meðal frægustu íbúa í gegnum tíðina má nefna stórskáldin Ernest Hemmingway og Tennessee Williams.  Hús Hemmingways er eitt aðal túrista-attractjónið á eyjunni, en þar búa ennþá um 50 kettir sem allir hafa 6 klær á hverri löpp!  Allt afkomendur katta Hemmingways.

Duval Street RainbowAndrúmsloftið á Key West er mjög "liberal" á Amerískan mælikvarða og hvort sem það er ástæðan eða afleiðing þá er eyjan næst fjölsóttasti sumarleyfis-áfangastaður samkynhneigðra Ameríkana á eftir Provincetown í Massachusetts. 

Önnur áhugaverð staðreynd, fyrir áhugamenn um flugsöguna, er sú að hið fornfræga flugfélag Pan American Airlines var stofnað á Key West árið 1926 og var fyrsta flugleiðin á milli Key West og Havana á Kúbu. Smile   Key West er án efa staðurinn til að flytja á þegar maður sest í helgan stein...verst að það eru sennilega 40 ár þangað til Crying...en vonandi fær maður tækifæri til að kíkja þangað í heimsókn við og við í millitíðinni.


mbl.is Dregið hefur úr styrk Ike
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Tómasson

Klukk!

Þú hefur verið klukkaður.

Heimir Tómasson, 9.9.2008 kl. 22:40

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Haha já Hippó við hverju bjóstu?   Takk fyrir skemmtilegt komment.

Heimir:  Klukkið er í vinnslu.

Róbert Björnsson, 10.9.2008 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband