"Frjálslyndir" Kristilegir þjóðernissinnar til valda á Íslandi?

Þar sem ég hef búið erlendis undanfarin ár hef ég ekki nennt að tjá mig mikið um Íslensk stjórnmál enda er ég líka almennt blessunarlega laus við áhuga á þessu gjarnan litlausa og óáhugaverða skvaldri sem fram fer á Alþingi Íslendinga.  Engu að síður er ég því einstaklega feginn hversu óáhugaverð Íslensk pólitík raunverulega er því ástæðan er sú að hún er EKKI lituð af hatrömmum átökum um þjóðfélagslegar og menningarlegar hugsjónir sem nærast á trúarofstæki og hatri.

Þrátt fyrir að þessi svokölluðu "Culture Wars" sem nú geysa hér í Bandaríkjunum sem aldrei fyrr, geri pólitíkina hér westra "skemmtilega" að sumu leiti...og þá meina ég áhugaverða út frá því sjónarhorni að andstæðurnar milli íhaldsaflanna og þeirra frjálslyndu eru svo afgerandi...þá er skemmtanagildið þó aðallega fólgið í því hversu auðvelt er að sjá spaugilegu hliðarnar á annars sorglegum veruleika. 

Bush-KKKÁ tímabili leit út fyrir að núverandi kosningabarátta hér westra ætti séns á að snúast um eitthvað fleira en þessi "Culture War issues" sem Karl Rove hannaði svo meistaralega til þess að koma George W. Bush í Hvíta Húsið með atkvæðum Kristinna þjóðernissinna.  Með valinu á Söruh Palin sem varaforsetaframbjóðanda McCains voru "Culture Wars" skotgrafirnar hertar í þeirri von um að hinn Kristilegi armur Repúblikananna skili sér á kjörstað.  Þið vitið, þessir sem vilja banna fóstureyðingar (en fjölga dauðarefsingum), hengja hommana uppí sömu tré og svertingjana forðum, fjarlægja Darwin úr skólakerfinu, afnema aðskilnað ríkis og kirkju, tryggja stöðu feðraveldisins og halda konum niðri, byggja múr á landamærum Mexíkó til að sporna við "innflytjendavandanum" sem ógnar stöðu hvíta mannsins og stuðla að eilífu stríði í miðausturlöndum í þeirri brjáluðu von að Þriðja heimsstyrjöldin brjótist út í formi spádóma Biblíunnar um heimsendi og endurkomu Krists!  Þið vitið...hugmyndir sem flest meðalgreint siðmenntað fólk álítur svæsna geðveiki og ógn við mannkynið.

Í mínum huga eru hugsjónir "Kristilegra þjóðernissina" ofur-einfaldlega samofnar hugmyndum Nasista (varðandi varðveislu "herraþjóðarinnar" og andúð á útlendingum og minnihlutahópum) og það er ósköp lítill munur á "Kristilegum þjóðernissinum" og Múslímskum spegilmyndum þeirra sem nú ráða ríkjum í löndum eins og Íran.  Enda er munurinn á Kristnum og Múslímskum öfgamönnum lítt meiri en munurinn á kúk og skít!

Sem betur fer eru flestir íslendingar almennt sammála um að það er ekki pláss fyrir svona hugmyndir á Alþingi íslendinga.  A.m.k. ætla ég rétt að vona að svo sé ennþá.

Kingdom ComingÞví miður hefur mér virst sem ákveðið "Nýtt Afl" innan Frjálslynda flokksins hafi verið með tilburði til þess undanfarið, leynt og ljóst, að ræna þeim annars um margt ágæta flokki og breyta honum í Kristilegan þjóðernisflokk, hvurs stefnumál gætu síðar reynst þjóðinni skaðleg.  Það er ljóst að kvótamálið er á leiðinni með að fjara út sem aðal (eina?) baráttumál flokksins og þeir aðilar sem nú reyna að ná völdum í flokknum hyggjast notfæra sér síaukna andúð á útlendingum sem mun einungis magnast í komandi fyrirsjánanlegu atvinnuleysisástandi. 

Hinn nýji markhópur Frjálslyndra virðast aðallega vera ómenntaðir, bitrir, ungir karlmenn með lága greindarvísitölu og lítil typpi sem hafa tapað vinnunni og kærustunni til útlendings og hafa svo fundið "Guð" eftir að hafa farið í dóp-meðferð í Byrginu eða á Kvíjabryggju.  Þið vitið þessi týpa á hlýrabolnum sem buffar konur og lifir fyrir bjór og Enska boltann.  Spurningin er hvort þessi íslenska "White Trash stereótýpa" sé nógu fjölmenn til þess að FF Kristilegir Þjóðernissinar nái 5% markinu í næstu Alþingiskosningum eða hvort Frjálslyndi flokkurinn þurrkist loksins endnanlega út.

American FascistsÉg minni á orð Jóns Magnússonar í Silfri Egils frá 25. mars í fyrra  en þá var hann spurður að því hvort Frjálslyndi flokkurinn væri að breytast í "Kristilegan Repúblíkanaflokk".  Svar Jóns var "Ja, ég væri útaf fyrir sig ánægður með það en ég held að ég ráði því ekki einn."

Í gær viðurkennir Jón Magnússon að hann sé Kristilegur Þjóðernissinni í athugasemd við áhugaverða bloggfærslu Ómars Ragnarssonar.  Hann reynir að vísu að snúa útúr merkingu þess hugtaks , m.a. með orðunum "Kristnar lífsskoðanir vísa til virðingar og velvilja til alls fólks óháð kyni, kynþætti eða stöðu" (rétt eins og Amerískir Evangelistar og Vatíkanið boðar þá eða?) og reynir að gera lítið úr afstöðu þjóðernissinna í garð útlendinga.

Mig langar að lokum að benda á tvær mjög áhugaverðar en ógnvekjandi bækur sem fjalla um uppgang Kristilegra Þjóðernissinna í Bandaríkjunum, í þeirri einlægu von að þessi óþverri nái aldrei að festa rótum á Íslandi!  Sú fyrri heitir Kingdom Coming: The Rise of Christian Nationalism eftir Michelle Goldberg (hér má sjá höfund lesa kafla úr bókinni og svara spurningum) og American Fascists: The Christian Right and the War On America eftir Chris Hedges.

P.S.  Áður en þið kommentið:  Ég nenni engan vegin að taka þátt í rökræðum um Frjálslynda flokkinn, innflytjendamálin eða "Kristið siðgæði".  Þið sem móðgist eða látið þessi skrif fara í taugarnar á ykkur á einhvern hátt... afsakið en mér kemur það ekki við.  Þetta eru einungis mínar pælingar sem ég set hér fram í mesta sakleysi, kannski á svolítið beittan hátt og að hluta til í háði, en það er bara minn ritstíll.  Það neyddi ykkur enginn til að lesa þetta, það neyðir ykkur enginn til að vera sammála mér og það neyðir ykkur sannarlega enginn til að leggja inn athugasemd...því "Frankly my dear, I don´t give a damn!".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djísús kræst... þetta er rosalegt dæmi maður FOKK

DoctorE (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 08:46

2 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Frábær grein Róbert.

Ég ætla að glugga í þessar bækur.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 18.9.2008 kl. 09:45

3 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Vá strákar. Ekki breyta þessum þræði í einhverja skítkastkeppni.

Ég hef aðeins reynt að ræða mínar minniháttar áhyggjur af innflytjendum, slíkt endar alltaf með því að einhverjir brjálaðir rasistar hoppa á vagninn.

Það þarf greinilega að taka þessa umræðu á mjög málefnalegum nótum til að hún verði ekki bull.

Horfið á vídeóið sem Róbert benti á, það er magnað, sjá hér.

Kristinn Theódórsson, 18.9.2008 kl. 10:43

4 identicon

Þið vitið hvað ég er duglegur að finna stöff á internetinu... trailer úr mynd um kristna þjóðernisrembu
http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/645833/

DoctorE (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 11:13

5 identicon

Frábær grein, þörf áminning.

Þekki svolítið til í nokkrum fylkjum USA og ég óttast þessa "pólaríseringu" sem virðist róið að frá hægri.

Skuggabaldur (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 11:13

6 identicon

Frábær grein hjá þér Róbert

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 13:42

7 identicon

Frábær umfjöllun, ég hafði bara ekki áttað mig á því að þessi Jesú-ismi væri orðin svona sterkur þarna í USA.     

 Alveg sammála þér um Frjálslynda á Íslandi, það eru bara uppþornaðir (low IQ) aumingjar sem þurkast mjög líklega út í næstu kosningum.   - Höfum ekki meiri áhyggjur af því. 

Steini (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 16:14

8 Smámynd: Róbert Björnsson

Takk fyrir athugasemdirnar allir!  Við skulum nú ekki fara af límingunum yfir þessu... þrátt fyrir allt trúi ég því ekki að Jón Magnússon og Magnús Þór eigi til í sér þær svæsnu hugmyndir sem "skoðanabræður" þeirra hér westra búa yfir og jafnvel þó þeir gerðu það þá efast ég um að þeir kæmust nokkurn tíma upp með að bera þær hugmyndir á torg á Íslandi...til þess erum við of smart...ekki satt?   Engu að síður finnst mér að vara beri við þessum hugmyndum og koma í veg fyrir að þær nái að festa rætur...just in case.

Ace:  Nei, ég er ekki að halda því fram að núverandi stefna Frjálslynda flokksins byggist á "rasisma og kynþáttahatri" þó svo etv. dansi þeir sumpart á línunni í daðri sínu við slíkar hugmyndir.   Ég vona svo sannarlega að flokknum endist sú gæfa að stíga ekki yfir þessa línu!  Þess vegna vona ég, Frjálslynda flokksins vegna, að hinn mikli sómadrengur Addi Kidda Gau verði áfram flokksformaður.

Það má vel vera að það séu "brotalamir á útlendingalögunum" sem þarf að lagfæra (þar á meðal að auðvelda mökum Íslenskra ríkisborgara sem koma frá löndum utan EES að öðlast dvalarleyfi og Íslenskt ríkisfang) en ég sé ekki að við þurfum aðkomu "Kristilegra þjóðernissinna" í þær lagfæringar.

Róbert Björnsson, 18.9.2008 kl. 16:54

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér fannst nú bara allt í lagi að Ólafur reyndi að henda þessum strámanni Ace út.  Annars varðandi það þá er nokkuð að þeir sem hafa hvað öfgafyllstar hugmyndir í þjóðernis og einangrunarhyggju og alveg út í blint kynþáttahatur, fylkja sér í raðir frjálslyndra, hvort sem það er opinber stefna flokksins eður ei. Það hef ég rekist oftar á hér á blogginu en tárum taki. Ef Ace trúir því ekki, þá get ég lagt það á mig að tína þá til, ef ég hef tíma og pósta því. 

Jón Steinar Ragnarsson, 18.9.2008 kl. 19:14

10 Smámynd: Heimir Tómasson

Jess! Fætingur! Vantar bara að við stöndum fyrir utan sveitaballið eins og í gamla daga.... he he.

Annars góð grein hjá þér Róbert, að venju.

Þið hinir þarna, verið til friðs eða farið út að leika ykkur. Helst í umferðinni.

Heimir Tómasson, 19.9.2008 kl. 02:50

11 Smámynd: AK-72

Góð grein og maður þarf að athuga með þessar bækur.

Ein spurning þessu tengt. Ert þú með nokkuð einhverja góða bók í kollinum varðandi kristna hryðjuverkamenn í Bandaríkjunum? Ég fékk smááhuga á þessu efni eftir að hafa séð heimildarmyndina Lake of fire um baráttuna með og gegn fóstureyðingum í BNA og þar var talað um kristin hryðjuverkasamtök þar.

AK-72, 20.9.2008 kl. 11:38

12 Smámynd: Róbert Björnsson

Ég man ekki eftir að hafa rekist á neina sérstaka bók í þeim efnum... það er til hellingur um Army of God og Aryan Nations, KKK og fleiri sukkópata...og svo eru til ýmsar áhugaverðar lesningar um Timothy McVeigh sem sprengdi federal bygginguna í Oklahoma City árið 1995.   Ég gekk um "ground zero" í Oklahoma árið 2000 rétt eftir að minnisvarði var reistur þar á þeim stað sem byggingin stóð og það var afar súrrealísk upplifiun...því það vantaði ennþá glugga í nærliggjandi byggingar og þetta var allt svo "ferskt" einhvernvegin og áhrifaríkt...enda stærsta hryðjuverk sem framið hafði verið í Bandaríkjunum fram að þeim tíma...og það af kristnum, hvítum, fyrrum hermanni.

Það er ágætis heimildalisti neðst á þessari wikipedia grein, mest blaðagreinar að vísu...en kannski eitthvað sem þú hefðir áhuga á.  http://en.wikipedia.org/wiki/Christian_terrorism

Róbert Björnsson, 20.9.2008 kl. 19:09

13 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Ég myndi seint bera saman XF og kristilega rugludalla frá Texas! Allavega ekki jafna þeim saman. Ágætis pælingar hjá þér, Róbert sæti. 

Varðandi þjálfun á hermönnum, þá eru þeir treinaðir í að slátra með byssusting. Reka riffilhníf í magann á fólki. Eitthvað til umhugsunar með Oklahoma bygginguna og líka þennan frábæra her sem á að fara að stofna á Íslandi!

Ólafur Þórðarson, 21.9.2008 kl. 07:34

14 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Heyrðu annars -Frábær könnun hjá þér!

Ólafur Þórðarson, 21.9.2008 kl. 07:36

15 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehe já... ég þarf að fara að blogga um niðurstöður þessarar hávísindalegu könnunar    Þetta eru allt fígúrur sem fólk elskar að hata og hefur jafnvel smá samúð með. 

Róbert Björnsson, 21.9.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband