Svarthöfði berst við blöðruhálskrabba

Dave and ICNN sagði frá því í dag að "vinur minn" Dave Prowse undirgengist nú geislameðferð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli.  Prowse er að sjálfsögðu best þekktur fyrir að leika sjálfan Darth Vader í upprunalegu Star Wars trílógíunni.  Eins og flestir vita sá þó James Earl Jones um röddina sem betur fer, enda er Dave frekar lágróma og talar með skelfilegum breskum cockney-hreim.  Dave virkaði á mig sem alger ljúflingur þegar ég hitti hann á Star Wars Celebration IV í Los Angeles í hittifyrra og hann gaf sér góðan tíma til að spjalla og árita myndir fyrir okkur brjáluðustu SW nördana. Joyful  Vonum að sjálfsögðu að kallinn nái sér fljótt og megi the Force be with him, always!

Hér má sjá nokkrar fleiri myndir frá Celebration IV þar sem ég hitti m.a. Carrie Fisher (Leia), Billy Dee Williams (Lando), Anthony Daniels (3PO), Kenny Baker (R2), Pete Mayhew (Chewie), Jeremy Bulloch (Boba Fett), Tamuera Morrison (Jango Fett), Daniel Logan (young Boba), Jake Lloyd (Anakin Ep.I), Ray Park (Darth Maul) og fleiri hetjur auk þess sem framleiðendur Robot Chicken og Family Guy þeir Seth Green og Seth McFarlane voru á staðnum.  

Lucasfilm hefur staðfest að Celebration V muni fara fram annaðhvort á næsta ári eða 2011 en fjórar borgir keppast nú um að fá að halda hátíðina/ráðstefnuna sem dregur að sér yfir 30 þúsund gesti.  Þetta eru Baltimore, Minneapolis, Chicago og Orlando.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hehe, þú ert nú meiri nördinn. Það er allavega huggun að þú ert ekki Trekkari. Eða..?

Jón Steinar Ragnarsson, 18.3.2009 kl. 21:19

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehehe...jú jú er smá Trekkari líka sko...en þó ekki eins fanatic   Live Long and Prosper!

Róbert Björnsson, 18.3.2009 kl. 21:55

3 identicon

"Eins og flestir vita sá þó James Earl Jones um röddina " ha ha ha þú ert ægilegt nörd.

NEI !!!  ég vissi það ekki og get ekki skilið að nokkur maður viti þetta.

Ragnhildur (IP-tala skráð) 19.3.2009 kl. 12:19

4 Smámynd: Róbert Björnsson

Whaaaat???   Hélt að allir þekktu James Earl Jones! 

Það er líka ýmislegt sem ég get ekki skilið að nokkur maður viti um... ýmislegt sem tengist landbúnaði til dæmis!   Erum við ekki öll nörd...bara á mismunandi sviðum.

Róbert Björnsson, 19.3.2009 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband