Flugtúr á Zeppelin NT loftskipi (myndband)
10.5.2014 | 09:46
Við feðgarnir skelltum okkur til Friedrichshafen við Bodensee (Lake Konstanz) hvar Ferdinand von Zeppelin greifi hóf smíði á loftskipum fyrir um hundrað árum síðan.
Fyrir um 15 árum síðan var Zeppelin Luftschifftechnik endurvakið og framleiðsla hafin á NT (Neue Technologie) loftskipum. Farartæki þessi eru í raun 8500 rúmmetra helíum-blöðrur með þremur Lycombing 200 hestafla mótorum og gondóla sem tekur tvo flugmenn og 12 farþega.
Það var mögnuð upplifun að fljúga í þessu apparati með Svissnesku Alpana í baksýn og maður upplifði sig hálfpartinn sem Max Zorin úr Bond myndinni View to a Kill. ;)
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.