Slagsmál í beinni hjá Bill Maher!

real_time_052505Það getur margt óvænt gerst í beinni útsendingu og að því varð ég vitni fyrr í kvöld þegar ég settist niður til að horfa á uppáhálds sjónvarpsþáttinn minn Real Time with Bill Maher á HBO.  Fyrir þá sem ekki þekkja Bill Maher þá er hann grínisti sem sérhæfir sig í "pólitískri satíru" og var áður með þætti á ABC sem hétu "Policitally Incorrect".  Ég mæli eindregið með að þið "klikkið hér" og kíkið á myndbrot úr þáttunum hans.

Real Time þættirnir eru sýndir einu sinni í viku í beinni útsendingu og fara fram þannig að Bill fær til sín góða gesti til að ræða málefni vikunnar og í þessu landi vitleysunnar er ætíð af nógu að taka, trust me!  Maher tekst einstaklega vel að snúa alvarlegustu málum á þann veg að hægt er að hlægja að þeim og hafa gaman af og hann er alveg óragur við að segja hlutina eins og þeir eru, á óritskoðuðu mannamáli. Smile 

Í kvöld voru gestir hans John Edwards forsetaframbjóðandi, Joel Stein dálkahöfunur á L.A. Times og Time Magazine, Sheila Jackson Lee, þingmaður frá Texas (D) og Chris Mathews sjónvarpsmaður sem stýrir þáttunum Hardball á MSNBC.  Auk þess bauð Bill uppá feiknagott viðtal við Garry Kasparov skáksnilling og forsetaframbjóðanda í Rússlandi um ástandið þar á bæ.

En en...í miðjum þættinum í kvöld gerðist sá skondni atburður að nokkrir áhorfendur úti í sal fóru að kalla frammí og láta ófriðlega.  Bill var greynilega ekki skemmt og þetta atvik virtist setja hann svolítið útaf laginu og svo fór fyrir rest að hann snappaði og fór að svara fyrir sig.  Það tók töluverðan tíma fyrir öryggisverði að bregðast við og svo fór að Bill stóð upp og hljóp sjálfur út í sal til þess að henda ólátabelgjunum út.  Þetta var auðvitað hálf fyndið allt saman og var farið að minna á Jerry Springer! Joyful  Það kom svo á daginn að ólátabelgirnir voru 9/11 samsærissinnar sem reiddust Maher um daginn þegar hann kallaði þá fífl fyrir að halda að WTC turnarnir hefðu verið sprengdir niður viljandi af Bush og co.

Það vill svo skemmtilega til að upptaka af atvikinu er komin á netið og hana má sjá með að smella hér.  Því miður er þetta ekki komið á youtube ennþá þannig að ég get ekki dembt þessu hérna inná síðuna.

Það sem ég skil ekki í þessu öllu saman er hvernig þeir komust inn í salinn með stærðarinnar mótmælaspjöld því ég hef kynnst öryggisgæslunni í Real Time stúdíóinu af eigin raun.  Ég var svo lánsamur í ferð minni til Hollywood í vor að vera viðstaddur æfingaþátt (kvöldið áður en þátturinn fer í loftið í beinni er haldið "dress rehearsal") og get vitnað um það að áður en manni var hleypt inn fór maður í gegnum vopnaleit eins og á flugvelli og varð maður að skilja myndavélina og farsímann eftir við hliðið.  Ég bloggaði aðeins um þetta ævintýri í vor og má lesa þá færslu hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djöfulsins geðsjúklingar...  Það vita allir að það var Saddam Hussein sem rústaði turnunum með fjarstýrðum loftskeitum. :)

Takk annars fyrir linkinn :)

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 07:49

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Lengi lifi Torrentinn   Vildi óska að fleiri íslendingar hefðu aðgang að þáttunum því þá myndu þeir sjá að það eru ekki ALLIR kanar snælduvitlausir geðsjúklingar!  

Varðandi samsæriskenninguna þá skil ég alveg þá sem á hana trúa þó svo ég geri það ekki sjálfur.  Það var óþarfi hjá Maher að kalla þá "nutcases" og að sama skapi óþarfi hjá þeim að trufla útsendinguna hjá kallinum...slíkar aðferðir eru þeim ekkert til framdráttar.

Róbert Björnsson, 20.10.2007 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.