Dennis Kucinich

Af hverju er þessi maður ekki forseti Bandaríkjanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Segi það. hef fylgst með honum í áraraðir og þegar hann dettur úr lestinni snemma í kosningabaráttunni, þá gleymir maður restinni. Næst verða það Clinton og Obama, algerlega vonlaust drasl.

Málið með Kucinich er að hann skilur að það verður að hefta fyrirtækjafasismann sem er í gangi. svo þá fær hann engann pening, enda snýst kosningabaráttan um að fá sem mestann pening og auglýsingar til að seljast, eins og hver annar banani.

Ólafur Þórðarson, 6.5.2007 kl. 01:53

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Já, hann má eiga það karlinn að hann stendur á sínum prinsippum og lætur ekki þagga niður í sér hvað sem tautar og raular.  Þó svo hann nái aldrei kosningu er gott að hafa hann þarna á hliðarlínunni þar sem hann heldur hinum við efnið með rödd skynseminnar.

Róbert Björnsson, 6.5.2007 kl. 23:08

3 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Gleymdi aðalatriðinu með Kucinich. Hann fær svotil enga pressu. Það er búið að ákveða að hann fái ekki útnefningu eins og í kosningunum þar áður. Hér kemur einn gallinn á "frjálsu" einkafjölmiðlunum, þeir sýna bara frambjóðendur sem eru pro-big-business. Og fyrst Kucinich er lýðræðislega sinnaður (talar fyrir hönd almennings) þá passar hann ekki inní þetta þrönga-klíkukerfi peningakalla, sem er fyrir hendi. See warræ mean, jelly bean?

Einn súper pro-RÚV

Ólafur Þórðarson, 7.5.2007 kl. 16:23

4 Smámynd: Róbert Björnsson

Hann gæti komið á óvart þetta árið, því ég held að hann sé orðinn það vel þekktur og kominn með stuðning grasrótarfólksins.  Hann er a.m.k. mjög vinsæll hérna í Minnesota af hinum svokölluðu Wellstone Demókrötum.   Paul Wellstone heitinn, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður Minnesota, var að mörgu leiti líkur Kucinich.  Heiðarlegur, "grænn" og alþýðlegur. 

Mér er ávallt minnisstætt þegar hann dó því það gerðist á afmælisdaginn minn árið 2002 þegar flugvél hans að gerðinni Beechcraft King Air, brotlenti í norðurhluta Minnesota.  Ég var þá einmitt að taka kúrs í "aviation safety" og næstu kennslustundir fóru allar í að spekúlera um hvað hefði valdið slysinu.  Niðurstaðan var mikil ísing, lélegt skyggni og mistök óreyndra flugmanna. 

Róbert Björnsson, 8.5.2007 kl. 07:47

5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ég ætla að vona að kraftaverkið gerist og að þessi maður verði næsti forseti Bandaríkjanna. Sannur friðarleiðtogi.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 10.5.2007 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.