Útvarpsviðtal aldarinnar!

Ég hlustaði á þetta viðtal við grey strákana í Sigurrós um daginn á National Public Radio og það var satt best að segja frekar sársaukafullt! LoL  Eins ágætir tónlistarmenn og þeir nú eru þá ættu þeir að hafa vit á að mæta ekki í viðtöl svona gjörsamlega mállausir og lúðalegir.

Þáttarstjórnendunum þóttu viðtalið svo einstaklega skelfilegt að nú er komin mynbandsupptaka af því á youtube, gjörið þið svo vel.

En þeim er ekki alls varnað blessuðum þrátt fyrir ófágaða framkomu í viðtölum...þeir vinna það upp á öðrum sviðum.  Þetta lag/myndband þeirra er allavega tær snilld. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uhhh ehhhmmm ehhhh mumble ehh :)

DoctorE (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 07:25

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Maður má nú ekki hæðast að fötluðum. Þeir eru nú borderline Asbergereinkenni blessaðir.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.10.2007 kl. 20:36

3 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehehe...úfff...já þú segir nokkuð    

Róbert Björnsson, 12.10.2007 kl. 21:47

4 identicon

Er þetta ekki svona: Good joint man dæmi :)

DoctorE (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 22:29

5 identicon

Það verður nú samt að segjast eins og er að spyrillinn var ekki beinlínis að spyrja skemmtilegra spurninga. Þetta voru um það bil stöðluðustu hljómsveitar spurningar sem ég hef heyrt. Í raun vantaði bara spurninguna um hvaða nafnið á hljómsveitinni væri fengið til að hann hefði verið með fullt hús í týpískum spurningum. Spyrillinn var greinilega ekki búinn að kynna sér bakland spurninganna. Eins og til dæmis spurninguna um hvort þeir hefðu einhvern sérstakan tón á Íslandi; hvort aðrar hljómsveitir á Íslandi væru farnar að "pikka þá upp". Hann var sem sagt ekkert búin að tékka á íslenskri músíksenu að því er virtist.

Hljómsveitin er reyndar líka búin að tjá sig um þetta viðtal og samkvæmt því eru þeir óvanir því að koma allir í viðtal í einu. Ef ég man rétt sögðust þeir alltaf hafa verið að bíða eftir því að einhver annar gripi spurninguna á lofti. Það sem sést svo vel á myndskeiðinu er að Georg Hólm er talsmaður bandsins. Ég held að hann hafi lang oftast komið fram í viðtölum. En þegar þeir eru allir saman komnir þá horfa þeir á hvern annan til að svara.

Jæja blessaðir drengirnir. Burt séð frá þessu öllu þá skein samt eitt í gegn, og það er í raun lykilatriðið, að tónlistin skiptir öllu máli, ekki það að geta blaðrað eitthvað í viðtölum þar sem stöðluðum spurningum er varpað fram.

Bestu kveðjur,

Ingi 

Ingi (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 03:03

6 Smámynd: Róbert Björnsson

DoctorE:  hmmm...hallast nú frekar að sjúkdómsgreiningu Jóns heldur en að þeir hafi verið skakkir 

Ingi:  Blessaður gamli   Það er hárrétt að músíkin er það sem máli skiptir í þessu og hún verður ekkert af þeim tekin. 

Það er alveg rétt að spurningarnar voru mjög staðlaðar og grunnar, en í því samhengi má þó ekki gleyma því að þeir eru þrátt fyrir allt ekki svo rosalega vel þekktir hérna og sennilega vita fæstir hlustendur NPR hverjir þeir eru.  Þessvegna verða þeir nú að vera viðbúnir því að svara svona leiðinlegum spurningum og ekki setja sig á einhvern háhest.  Mér finnst heldur ekki hægt að ætlast til þess að þáttastjórnandinn hafi verið búinn að kynna sér íslensku músíksenuna til hlítar enda hafa hlustendur hans sennilega engann áhuga á henni almennt séð.

Það er alveg augljóst eins og þú bendir á að þeir virtust allir vera að bíða eftir því að einhver annar svaraði spurningunum, en það hljóta að vera þeirra mistök að hafa ekki undirbúið sig betur og sýnt meiri "professionalisma" áður en þeir mæta í viðtalsþátt sem hefur margar miljónir hlustenda.  Svo hefði maður nú haldið að á öllum þessum tónleikaferðalögum að þeir hefðu nú lært smá ensku

En ok...ok... nú skal ég hætta að dissa þessa ágætu listamenn!

Róbert Björnsson, 13.10.2007 kl. 06:25

7 identicon

U gotta be st0ned 2 make muzak like that.... me thinks ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 14:54

8 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehe...oh definately.  Same applies to the listener...in order to "get" their muzak it helps to be pretty well baked. 

Róbert Björnsson, 13.10.2007 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband