Næsti Bobby Kennedy?

Obama08_Badge2aHann er kannski of góður til að ná kjöri...en maður leyfir sér enn að halda í vonina um að þessari þjóð sé viðbjargandi. 

Kíkið á þessi myndbönd og kynnist Barry.

Obama 08


mbl.is Obama lætur engan bilbug á sér finna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Ertu kominn á kaf í kosningaherferðina? Það sem við þurfum hér í Ameríku eru stjórnmálamenn sem geta talað máli stórfyrirtækja, aumingja þau, allir hata þau. Best er ef stjórnmálamenn séu í sem mestu Joakim Von And peningabaði til að geta unnið sín störf. Ameríka þarf á fjárfestingum að halda, ekki menntun.

kveðja frá hell

Ólafur Þórðarson, 2.10.2007 kl. 09:45

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Hehe...já, ég ákvað loksins að stökkva um borð hjá Obama því ég álít hann lang "skástan" af þessum "mainstream" kandídötum sem eiga raunverulegan séns, hvort sem manni líkar það betur eða verr. 

Auðvitað vildi ég í hjarta mínu heldur sjá Dennis Kucinich, já eða jafnvel blessaðan Mike Gravel ná til fólks...en því miður eru þeir bara of langt úti á jaðrinum til að eiga nokkra möguleika.  Ástæðan er kannski sú að of margir hugsa eins og ég og segja skilið við þá of snemma, til þess að styðja "næstbesta" en öruggasta kostinn til sigurs?  Sellouts?  Ja, kannski.

Ég trúi því nú samt í góðri von að Obama sé hvað minnst háður "corporate America" og "special interests groups" af öllum þessum stóru kandídötum.  Að minnsta kosti fæ ég það á tilfinninguna að hann sé skárri en Hillary og John Edwards hvað það varðar.

Róbert Björnsson, 2.10.2007 kl. 15:20

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann er illskástur blessaður og á rætur í alþýðunni, sem er afar mikilvægt, samaborið við hitt corporativ pakkið.   Annars breytir það litlu hver ræður, meðan þingið er SVONA.  Gaman að vita hvort Barak er til í að laga þetta. Soldið basic issue.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.10.2007 kl. 21:03

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég vona að Guð gefi að þeir skjóti hann ekki eins og Bobby.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.10.2007 kl. 21:08

5 Smámynd: Róbert Björnsson

Já þeir eru takkaóðir andskotar þarna suðrí Texas   En þetta hefur nú líka tíðkast á Alþingi Íslendinga er það ekki?   Hver var það aftur sem kaus fyrir Árna Johnsen um árið?

En já, það væri svosem því miður eftir "þeim" að skjóta Obama ef hann næði of langt.  Eitt er víst að Secret Service þyrfti að vinna fyrir kaupinu sínu. 

Róbert Björnsson, 2.10.2007 kl. 23:54

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Matti Bjarna kaus fyrir Árna. Það er nú eina tilfellið held ég. Þetta er nokkuð grófara, sérstaklega þegar menn teygðu sig yfir flokksmörkin og kysu fyrir andstæðingana.  Lifi framvörður lýðræðis í heiminum!

Ég vona að hann velgi þessari corporative mafíu undir uggum hann Obama.  Fólk á skilið betra en þetta einræði.  Bush beitir neitunarvaldi sínu hægri vinstri á samþykktir þingsins, svo að það er orðin spurning hvort þess sé þörf yfirleitt.Í dag hafnaði hann sköttum á Tókbaksfyrirtæki og framlögum til heilsugæslu barna.  Á morgun eykur hann vafalaust framlög til hermála og lækkar skatta á fyrirtæki.  Það er alveg í flokkslínunni.

Aumingja Ameríkanar að lifa við þetta og fá svo ekkert að vita af svínaríinu, því fjölmiðlar eru allir á mála hjá klaninu.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.10.2007 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband