Föđurbetrungurinn Ron Reagan
7.9.2008 | 05:44
Íhaldssamir Repúblíkanar og hugsjónabrćđur ţeirra á Íslandi dá og dýrka Ronald Reagan sem aldrei fyrr. Dýrđarljómi hans lifir í hjörtum ţeirra líkt og um heilagan spámann vćri ađ rćđa. Ungir Repúblíkanar hengja slefandi upp myndir af honum á vegg hjá sér líkt og 13 ára gelgjustelpur hengja upp plaköt af Justin Timberlake og ungir Sjallar mynd af Davíđ Oddssyni.
Allir forseta-frambjóđendur Repúblíkananna kepptust viđ ađ líkja sjálfum sér viđ Reagan og John McCain gerir nú mikiđ úr ţví ađ hann hafi veriđ lćrisveinn hans og ađ ţeir hafi veriđ nánast eins og feđgar! Ţađ er ţví yndisleg kaldhćđni örlaganna ađ raunverulegur sonur og nafni Reagans gamla skuli vera hatađur og fyrirlitinn af helstu ađdáendum föđur síns.
Ron Reagan er yngsti sonur ţeirra Ronalds og frú Nancy og var ávallt álitinn svarti sauđurinn í fjölskyldunni og ćttinni til skammar enda virtist drengurinn vera flaming gay! (nokkuđ sem hann neitar reyndar ennţá...en ţađ gerđi Cliff Richards líka ţangađ til í vikunni )
Ron junior hćtti á sínum tíma í Yale háskólanum til ţess ađ leggja fyrir sig Ballet-dans og dansađi um tíma međ hinum virta Joffrey Ballet danshópi í New York. Athygli vakti ađ foreldrar hans mćttu aldrei á sýningu og sáu hann aldrei dansa.Ron hefur starfađ viđ ýmislegt um ćvina, stýrt sínum eigin spjallţćtti, veriđ hundarćktandi og lýst hundasýningum í sjónvarpi, veriđ dálkahöfundur í tímaritum á borđ viđ Newsweek, Esquire og Ladies´ Home Journal.
Ţá hefur Ron veriđ gestastjórnandi stjórnmálaţátta á MSNBC og nýr útvarpsţáttur hans fer í loftiđ á mánudagin á útvarpsstöđinni Air America sem ţykir frekar vinstri-sinnuđ.
Ţrátt fyrir ađ Ron segist vera óháđur í pólitík hefur hann í gegnum tíđina stutt frambjóđendur Demókrata og hann hefur veriđ andvígur stríđinu í írak frá upphafi og ítrekađ gagnrýnt Bush stjórnina harkalega. Ennfremur hefur hann látiđ til sín taka sem aktívisti en hann hefur barist ötullega fyrir stofnfrumurannsóknum og fyrir ţví ađ finna lćkningu viđ AIDS (ólíkt föđur hans sem neitađi ađ veita opinberum fjármunum í rannsóknir á AIDS...enda bara "hommasjúkdómur"). Ţađ má ađ miklu leiti kenna stefnu Ronalds Reagan um hinn hörmulega faraldur sem geisađi á níunda áratugnum.
Ron hefur sagst vera trúlaus og talađ um ţađ opinskátt í viđtölum og hefur ţađ eitt og sér fariđ skelfilega fyrir brjóstiđ á Reagan-istum. Hann býr nú í Seattle ásamt eiginkonu sinni Doriu sem er sálfrćđingur og búddisti. Ţau eru barnlaus en eiga saman ţrjá ketti.
P.S. Ron á ágćtan brandara hér hjá Bill Maher
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)