Blóðug mismunun hjá Blóðbankanum
4.3.2010 | 22:23
John Kerry, Öldungardeildarþingmaður frá Massachusetts og fyrrum forsetaframbjóðandi (sem ég gerðist svo frægur að kjósa hér um árið) lagði í dag fram frumvarp (ásamt 17 öðrum) þess efnis að lög sem banna Bandarískum hommum að gefa blóð verði afnumin.
Lögin voru sett árið 1983 af stjórn Ronalds Reagan (sem var með eindæmum hómófóbískur) en á þeim tíma var AIDS faraldurinn í hámarki og var sjúkdómurinn þá talinn "homma-plága" og "lækning Guðs" við samkynhneigð.
Síðan hefur sem betur fer mikið vatn runnið til sjávar (um 11 milljarðar rúmtonna úr Mississippi eingöngu) og í dag eru alls engin vísindaleg rök fyrir því að banna hommum að gefa sitt gæðablóð. Bæði Ameríski rauði krossinn og Lyfjaeftirlitið (FDA) styðja tillögu Kerry´s enda benda þeir á að í dag er allt blóð skimað svo vel að nánast ógjörningur er að HIV smitað blóð komist í dreifingu auk þess sem nýjustu rannsóknir sýna að flest nýsmit HIV greinast nú meðal gagnkynhneigðra kvenna!
Það er því furðulegt að á meðan Blóðbankar (þar á meðal sá Íslenski) kvarta undan sífelldum skorti á blóði, skuli þeir ennþá vera svo vandlátir á viðskiptavini. Skildi það vera að aðrar og ógeðfelldari (trúarlegar?) ástæður en vísindalegar séu ástæðan fyrir því að þessum lögum hefur ekki enn verið breytt. Ekki einu sinni á Íslandi - sem þó stærir sig af því að vera í fararbroddi ríkja heims hvað varðar mannréttindi samkynhneigðra? Getur það verið að þeir sem ráða ferðinni séu haldnir fordómum - eða finnst almenningi tilhugsunin um að fá dælt í sig "homma-blóði" á einhvern hátt fælandi? Heldur fólk kannski að það gæti smitast af samkynhneigð?
Hvernig sem á það er litið væri það skammarlegt fyrir Íslenska Blóðbankann að láta Ameríkanana verða fyrri til að breyta þessum lögum (sem nú stefnir allt í...loksins ). Það er ekki bara sár móðgun við fullhraustann mann, sem vill gefa af sér til samfélagsins, að vera "afþakkað" með þessum hætti - það er gróf mismunun.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Heilbrigðismál, Mannréttindi | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.