Icelandic snake-oil-salesmen
18.11.2008 | 10:13
Vaknaði hríðskjálfandi klukkan hálf fjögur í morgun og áttaði mig á því að ég hafði sofnað við galopinn glugga og úti er 12 stiga gaddur. Eftir að ég hafði náð mér í teppi og örlbylgjað Nestlé kakó kveikti ég á imbanum og vildi ekki betur til en svo að sjónvarpsmarkaðurinn var að auglýsa "the Secret of Icelandic Health and Long Life"... hvorki meira né minna.
Varan virðist einfaldlega vera hið rammíslenska Lýsi, þó svo ekki sé notast við það vörumerki. Þó svo innihaldið virðist aðallega vera Omega-3 fitusýrur tekst þeim að markaðssetja Lýsið sem 9 mismunandi "formúlur" sem hver um sig á að gagnast við liðverkjum, veiku ónæmiskerfi, slæmri húð og minnisleysi auk þess sem sumar formúlurnar eru góðar fyrir hjartað, blöðruhálskirtilinn og góða skapið.
Þriggja mánaða skammtur kostar ekki nema $250 og ef þú finnur ekki fyrir bættu skammtímaminni innan þriggja vikna þá færðu endurgreitt! 100% Money Back Guarantee.
Svo er bara spurningin hvort þetta sé enn eitt Ice-Save Nígeríu-svindlið...og þá hvort íslensku þjóðinni beri að endurgreiða...og gert sé ráð fyrir þessu í lánapakkanum frá IMF.
Hér er vefsíða icelandhealth.com

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.