I still have a dream!
5.11.2008 | 19:55
Eins og mig langar til að vera í góðu skapi í dag eftir sigur Obama eru nokkrir hlutir sem skyggja á gleðina. Ekki nóg með að geðsjúklingurinn og McCarthý-istinn Michele Bachmann hafi endurheimt þingsæti sitt hér í Minnesota 6th og Al Franken virðist hafa tapað baráttunni um öldungadeildarsætið (á reyndar eftir að telja aftur þar sem einungis munar nokkur hundrum atkvæðum) heldur náði Prop 8 í Kalíforníu í gegn líka.
Mormónar frá Utah og Kaþólska kirkjan tóku höndum saman og dældu $40 milljónum dollara í hómófóbískar auglýsingar sem gengu út á það að ef hjónabönd samkynhneigðra yrðu lögleg þá yrði börnum kennt í grunnskólum að samkynhneigð væri til og að fólk að sama kyni gæti meira að segja giftst. Slíkt væri náttúrulega hroðalegt og myndi örugglega verða þess valdandi að fjöldi samkynhneigðra myndi breytast úr 3-5% upp í 30-50% !!!
Við hverju er svosem að búast frá fólki sem trúir á sköpunarkenninguna?
Svipuð lög voru samþykkt í Arizona og Flórída og í Arkansas var lögum breytt til þess að koma í veg fyrir að samkynhneigð pör gætu ættleitt börn.
Það er þungbært að sjá þessi lög fara í gegn á sama kvöldi og fyrsti svarti forsetinn er kjörinn. Draumur Martin Luther Kings frá 1964 rættist að hluta til í gær...en þó ekki alveg. Það sitja enn ekki allir við sama borð í Bandaríkjunum. Baráttunni við heimsku, fáfræði og mannvonsku er hvergi nærri lokið. Þessi orrusta tapaðist en stríðið heldur áfram!
![]() |
Hjónabönd samkynhneigðra ólögleg í Kaliforníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)