Færsluflokkur: Bloggar
Bill Maher ræðir um ástandið á Íslandi
18.10.2008 | 20:52
Það vantar ekki að Bill Maher er upplýstur maður með eindæmum og ræðir hér á léttu nótunum við Pulitzer-rithöfundinn og dálkahöfund New York Times, Thomas Friedman, sem nýlega gaf út bókina "Hot, Flat and Crowded". Meðal þess sem þeir ræða um er bráðnun hagkerfisins á litla Íslandi og hvað það þýðir í stærra samhengi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Haustlitirnir
14.10.2008 | 07:20
Haustið er fagurt hér í Minnesota og fátt er betra fyrir geðheilsuna á þessum síðustu og verstu en að fara út í göngutúr og virða fyrir sér náttúruna. Við félagarnir gengum meðfram Mississippi fljótinu í gær í 22° hita og hressandi úða. Myndavélin var að sjálfsögðu með í för. (afsakið léleg myndgæði...mæli sterklega með að þið smellið hér og veljið "watch in high quality")
Einn prófessoranna minna hafði svo samband við mig um helgina og kallaði mig á sinn fund í dag. Prófessorinn hafði fengið heimsókn frá hausaveiðara í leit að útskriftarnemum og hann ákvað að segja frá mér og þeim verkefnum sem ég hef unnið að. Hausaveiðarinn var víst áhugasamur um að heyra í mér og bað prófessorinn um að skila til mín nafnspjaldinu sínu ásamt kynningarpakka frá fyrirtækinu...já og kaffi-hitabrúsa!
Fyrirtækið sem um ræðir er alhliða verkfræðistofa sem sérhæfir sig m.a. í flugvöllum. Höfuðstöðvarnar eru í Fargo, ND...af öllum stöðum...en ég ætla engu að síður að reyna að grípa gæsina og hafa samband við hausaveiðarann. Hér er vefsíðan þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Framtíðardraumar hrynja - ber enginn ábyrgð?
11.10.2008 | 00:03
Nú þegar þessari örlagaviku er að ljúka og hægist aðeins á glundroðanum sem hélt manni dofnum, orðlausum og í einskonar sprengjusjokki út vikuna, sækir að manni reiði og sorg. Þó maður geri sér enn í raun litla grein fyrir endanlegum afleiðingum "hrunsins" er þegar nokkuð ljóst að veruleikinn er breyttur. Öll framtíðaráform, allir draumar þúsunda íslendinga eru orðnir að engu, eða í besta falli í algerri óvissu. Orðspor og mannorð íslendinga er orðið að háði í erlendum fjölmiðlum. Í gærkvöldi horfði ég til að mynda á Conan O'Brien í Late Night á NBC gera grín að ástandinu á Íslandi...ég reyndi að hlægja en gat það ekki.
Stjórnmálamenn segja nú hver ofan í annan að nú sé ekki rétti tíminn til að leita sökudólga...nú verði "allir að standa saman". Það þýðir væntanlega á mannamáli að enginn á að svara til saka. Enginn á að axla ábyrgð á einu eða neinu. Fólkið í landinu situr uppi með skaðann og fær ekkert réttlæti.
Það ber enginn ábyrgð á því að draumar ungs fólks sem farið hafa utan til að afla sér menntunar séu orðnir að engu. Að hugsanlega þurfi fleiri tugir eða hundruðir íslenskra námsmanna erlendis að hætta námi og hrekjast heim þar sem fátt bíður þeirra annað en atvinnuleysi og skuldir. Það ber enginn ábyrgð á því að líf fólks er lagt í rúst.
Nákominn ættingi minn sem nýlega lagðist í helgan stein eftir að hafa verið bankastarfsmaður í yfir 30 ár og hafði skrapað saman í gegnum árin og keypt hlutabréf í bankanum sínum sem öruggan sparnað til efri áranna hefur nú glatað því fé og striti fyrir fullt og allt. Það ber enginn ábyrgð á því.
Persónulega veit ég ekki hvað verður um mína framtíð. Það var markmið mitt að skrimta hér í Bandaríkjunum og bíða eftir því að fá í hendur tímabundið atvinnuleyfi sem nemendur eiga rétt á að loknu námi. Venjulega er um eins árs atvinnuleyfi að ræða en í sumar var lögum breytt í þá átt að þeir sem útskrifast með gráður á tækni, verkfræði og vísindasviðum geta sótt um 17 mánaða framlengingu eða þá samtals 29 mánuði. Minn draumur var að reyna að nýta mér þetta tækifæri til að öðlast starfsreynslu og hugsanlega að fara svo í doktorsnám í framhaldi af því. Atvinnuleyfið fæ ég hins vegar að öllum líkindum ekki fyrr en í desember eða janúar og ef ég fer úr landi í millitíðinni dettur umsóknin og dvalarleyfið úr gildi. Það er ansi erfitt að vita ekki hvort fyrirgreiðsla fáist í hinum nýja íslenska ríkisbanka til þess að brúa þetta tímabil og í raun hvort maður geti greitt húsaleigu um næstu mánaðarmót. Sem betur fer hef ég fyrir mat og nauðsynjum út mánuðinn en svo kemur í ljós hvort örlögin séu áframhaldandi dvöl í "landi tækifæranna" eða one-way ticket to Iceland.
Þó svo það væri kannski ekki beint heimsendir fyrir mig að þurfa að flytjast til Íslands...þannig séð...þá hefði það verið ákvörðun sem ég hefði viljað fá að taka sjálfur og undir öðrum kringumstæðum. Það er óþægileg tilfinning að vita til þess að heimska, vanhæfni og græðgi nokkurra einstaklinga verði til þess að eyðileggja framtíð heillar þjóðar.
Undir þessum kringumstæðum er erfitt að halda tilfinningunum í skefjum. Vonin þverrar og reiðin vex. Þó svo ég geri mér fulla grein fyrir því að reiði er tilgangslaus þá er hún einfaldlega eðlilegur hlutur af sorgarferlinu sem allir ganga nú í gegnum og fólk verður að vinna sig í gegnum það. Auðvitað á ekki að leggjast í nornaveiðar og aftökur en það hlýtur að verða skipuð rannsóknar-þingnefnd (líkt og Senate Hearings hér í US) sem dregur menn (og hugmyndastefnur) til ábyrgðar.
Varast ber þann blekkingaleik og smjörklípuaðferð að beina reiðinni að Bretum. Þrátt fyrir óheppilega og sumpart ósanngjarna umfjöllun þeirra bera þeir ekki ábyrgð á hvernig fór. Leyfum ekki íslenskum stjórnmálamönnum að komast upp með að firra sig ábyrgð með því að kvarta yfir viðbrögðum Breta, sem þrátt fyrir allt voru að vissu leiti skiljanleg.
Einhverntíma styttir upp og bjartsýni og þor taka völdin á ný. Við verðum reynslunni ríkari. Breytt gildismat. Okkar sjálfsvorkunar-væl um brostna drauma og fjárhagsáhyggjur myndi hljóma furðulega í eyrum 90% mannkyns sem býr við alvarlegan skort, mannréttindabrot og ófriðarástand. Sömuleiðis í eyrum þeirra sem glíma við veikindi og ástvinamissi.
Fyrir ofdekraða íslendinga er þetta samt afar "hörð lending".
![]() |
Námsmenn erlendis í vanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
We´ll Meet Again!
6.10.2008 | 18:09
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vatíkanið hafnar frönskum sendiherrum
5.10.2008 | 19:31
Frakkar eiga í vandræðum með að fylla sendiherrastöðuna í Vatíkaninu og hefur staðan nú verið laus síðan í desember 2007. Vandinn er sá að Páfinn hefur ákveðna standarda... fyrst höfnuðu þeir hinum virta rithöfundi og blaðamanni Denis Tillinac, góðvini Jacques Chirac, því hann hafði framið þá regin synd að hafa skilið við konuna sína og gifst aftur.
Þá ákvað Franska utanríksiráðuneitið að skipa fyrrum sendiherra Frakka í Búlgariu, Jean-Loup Kuhn-Delforge, sem nú er yfirmaður "Consular Affairs Directorate" í París og er virtur diplómat. Ekki líkaði Páfa það val og aftur var svarið: "grazie, ma non grazie". Að þessu sinni var ástæðan sú að Jean-Loup fer ekki leynt með samkynhneigð sína og er í staðfestri sambúð með manni sínum til margra ára. Doh!
Sumir segja að Frakkar séu með þessu að "stríða" Vatíkaninu en það er alls óvíst hvenær þeir finna "hæfan" diplómat til að senda í Vatíkanið. Það er erfitt að gera sumu fólki til geðs. Sjá frétt hér .
![]() |
Páfi hefur áhyggjur af trúleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Religulous frumsýnd í kvöld
3.10.2008 | 19:35
Ég hef beðið eftir þessari stund með þónokkurri eftirvæntingu enda fátt skemmtilegra en að hlægja að trúarnötturum. Þó svo trúarbrögð séu yfir höfuð reglulega sorgleg fyrirbæri og mannskemmandi þá nær minn Messías, Bill Maher, yfirleitt að sýna okkur fyndnu og fáránlegu hliðarnar á trúarbrögðunum...í bland við hræsnina og ógeðið. Ég er viss um að þessi mynd á eftir að slá í gegn og vonandi "frelsa" einhverja úr viðjum trúar sinnar...þrátt fyrir að á þessum erfiðu tímum sé örugglega fró í að eiga ýmindaðan vin á himnum sem segir þeim að hafa nú ekki áhyggjur af lánunum sínum því heimsendir sé hvort eð er handan við hornið og Guddi veitir öllum lán í himnaríki á 2.25% vöxtum til 1000 ára!
Það kom mér ekki á óvart að Religulous er ekki sýnd hér í litla sæta kaþólska háskólaþorpinu mínu og verð ég því að gera mér ferð til Minneapolis þar sem einungis eitt bíó (Landmark í Edina) þorir að sýna myndina...geri þó ráð fyrir að hún fari í stærri dreifingu á næstu vikum...en ég get ekki beðið eftir því. Býst við húsfylli í kvöld svo ég er búinn að panta miðana á netinu og er að leggja í hann niðureftir í stórborgina. Svo verður maður að vera kominn heim fyrir miðnætti til að ná nýjasta þætti Real Time with Bill Maher...sem sé double dose af Maher í kvöld. (sem minnir mig á þegar ég mætti í stúdíóið og horfði á karlinn í eigin persónu í fyrra, sjá hér og hér og hér)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
For a Few Dollars More
30.9.2008 | 22:04

Ég hafði hugsað mér að reyna að þrauka hérna á meðan ég bíð eftir atvinnuleyfi og prófa að vinna hérna í a.m.k. eitt ár. En þegar dollarinn kostar orðið 106 krónur (og sennilega 110 á morgun og 115 á hinn) og maður lifir á yfirdráttarlánum í íslenskum ríkisbanka...þá fallast manni eiginlega hendur.
Nær maður að borga leiguna nú um mánaðarmótin? Verður eitthvað afgangs fyrir "macaroni & cheese"? Ætti maður að eyða síðustu dollurunum í flugfar til Íslands í alla eymdina og atvinnuleysið og 7 fermetra herbergi hjá pabba gamla á Selfossi? Eða á maður að gefa skít í þetta og keyra á síðasta bensíntanknum áleiðis til Kalíforníu og gerast heimilislaus street hustler eða til Mexíkó að tína jarðarber?
Eða er þetta allt slæmur draumur? Eða falin myndavél? Er brandarinn búinn?
Screw it...í kvöld geri ég bara eins og aðrir Minnesota búar og gleymi áhyggjunum yfir úrslitaleik Twins og White Sox.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Harvey Milk
28.9.2008 | 05:17
Það styttist óðum í frumsýningu á næstu stórmynd meistara Sean Penn. Hún fjallar um líf Harvey Milk og er leikstýrt af Gus Van Sant og með hlutverk Dan White, sem á endanum myrti Harvey ásamt borgarstjóra San Fransisco árið 1978, fer enginn annar en Josh Brolin. Endilega kíkið á trailerinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alan Turing - Líf og örlög guðföður nútíma tölvunarfræði, stríðshetju og dæmds kynvillings
22.9.2008 | 08:55
Nafn Alan Turing er sennilega ekki mjög þekkt á Íslandi frekar en annarsstaðar. Það er kannski helst að þröngur hópur tölvunörda og verkfræðinga kannist við nafnið, en Alan var einn af upphafsmönnum stafrænnar tækni og tók þátt í að smíða sumar af fyrstu stafrænu tölvum heims auk algóriþmanns sem kenndur er við "The Turing Machine". Þar að auki var hann einn af hugmyndasmiðum gervigreindar (Artificial Intelligence) og í hjáverkum braut hann leynikóða Nasista (Enigma Machine) sem varð til þess að Bandamenn náðu að sigrast á kafbátaflota Þjóðverja og hafði þannig gríðarleg áhrif á gang Seinni heimsstyrjaldarinnar. Þú værir hugsanlega ekki að skoða þig um á netinu núna ef ekki hefði verið fyrir Alan Turing.
Þrátt fyrir allt þetta er nafn hans enn þann dag í dag nánast ókunnugt enda var þessum snjalla Enska stærðfræðing (og heimsspeking) ekki hampað sem hetju af þjóð sinni í þakklætisskyni, heldur var líf hans og orðspor lagt í rúst á grimmilegan hátt.
Alan Touring fæddist í London árið 1912 og kom snemma í ljós að hann væri með snilligáfu á sviði stærðfræði. Á unglingsárunum nam hann við hinn virta einkaskóla Sherborne School þar sem hann fór létt með að útskýra og skrifa heilu ritgerðirnar um afstæðiskenningu Einsteins löngu áður en hann tók sinn fyrsta kúrs í grunn-kalkúlus! Á menntaskóla-árunum í Sherborne varð Alan ástfanginn af skólabróður sínum Christopher Morcom og þeir áttu í sambandi uns Morcom lést skyndilega af völdum bráða-berkla sýkingar. Fráfall Morcom´s hafði gríðarleg áhrif á Alan sem í kjölfarið gerðist trúleysingi og mikill efnishyggjumaður.
Alan vann síðar skólastyrk til þess að nema stærðfræði við King´s College í Cambridge þar sem hann byggði mikið á verkum Kurt Gödels og lagði fram grunninn að nútíma forritun eða algóriþmum. Hann öðlaðist svo doktorspróf frá Princeton háskóla í Bandaríkjunum en þegar stríðið braust út hóf hann störf fyrir Bresku leyniþjónustuna þar sem hann vann við að leysa dulkóðanir í Bletchley Park í Milton Keynes. Þar átti hann m.a. stóran þátt í að leysa ráðgátur "The Enigma Machine" og fyrir það var hann sæmdur tign OBE (Officer of the British Empire). Eftir stríðið starfaði hann við rannsóknir við háskólann í Manchester og tók m.a. þátt í smíði og forritun á fyrstu tölvunum og "fann upp" gervigreind.
Alan fór aldrei mjög leynt með samkynhneigð sína en það var ekki vel séð af samfélaginu, hvað þá yfirvaldinu. Kalda stríðið var hafið og yfirvöld óttuðust að "kynvillingar" væru líklegir til að gerast Sovéskir njósnarar og því var fylgst vel með Turing. Árið 1952 var hann handtekinn og ákærður fyrir glæpinn samkynhneigð. Alan viðurkenndi glæpinn og hann var því dæmdur sekur á sömu lagagrein og Oscar Wilde 50 árum áður. Sem refsingu mátti Alan velja á milli 7 ára fangelsisvistar eða stofufangelsis gegn því að hann undirgengist vönun með hormónagjöf og sálfræðimeðferð. Þar sem Alan óttaðist að lifa ekki af í fangelsi valdi hann síðari kostinn.
Eftir dóminn var Alan sviftur öryggisréttindum sínum og gat þar af leiðandi ekki starfað áfram fyrir leyniþjónustuna né komið að leynilegum rannsóknum og auk þess fylgdist lögreglan með hverju skrefi hans. Hormónameðferðin hafði m.a. þær aukaverkanir að Alan uxu brjóst og hann fann fyrir erfiðum sálrænum kvillum sem gerðu honum ókleyft að einbeita sér að því eina sem skipti hann orðið máli í lífinu...stærðfræðinni.
Árið 1954 fannst Alan Turing látinn á heimili sínu, aðeins 42 ára gamall. Við rúm hans fannst hálf-klárað epli sem reyndist fyllt af blásýru. Opinber dánarorsök var skráð sjálfsmorð. Enginn veit hverju fleiru þessi snillingur hefði getað áorkað og skilað mannkyninu hefði hann ekki verið ofsóttur og í raun tekinn af lífi í blóma lífs síns. Mörgum kann að koma á óvart að svona hafi þetta verið í vestrænu lýðræðisríki lang frameftir tuttugustu öldinni en það má heldur ekki gleyma því að þegar Bandamenn frelsuðu Gyðinga úr útrýmingabúðum Nasista voru hommarnir skildir eftir áfram í Þýskum fangelsum og á meðal "úrræða" Breskra yfirvalda sem beitt var fram til ársins 1967 þegar samkynhneigð var loksins "lögleidd", voru rafstuðs-meðferðir sem voru í raun ekkert annað en skelfilegar pyndingar. Hugsið ykkur hvað er í raun stutt síðan! Og hugsið ykkur að ef fólk eins og JVJ moggabloggari fengju að ráða (sem gekk jú í Cambridge háskóla líkt og Alan Turing) væri fólk enn ofsótt fyrir "glæpinn" samkynhneigð.
Alan Turing hefði orðið 96 ára í ár hefði hann lifað. Loksins árið 2001 var honum sýnd sú virðing að reistur var minnisvarði um hann í Manchesterborg og í fyrra var sömuleiðis gerður minnisvarði honum til heiðurs í Bletchley Park. Allt frá árinu 1966 hafa verið veitt Turing-verðlaunin fyrir afrek í tölvunarfræði sem líkt er við Nóbels-verðlaunin á því sviði. Þá var gerð kvikmynd byggð á lífi Turings árið 1996 sem ber heitið "Breaking the Code" þar sem stórleikarinn Derek Jakobi fer með hlutverk Alans. Hér má sjá brot úr myndinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
I´m a PC
21.9.2008 | 22:13
Skemmtileg ný auglýsing frá Microsoft.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)