Færsluflokkur: Bloggar
Vegið að Sinfó
6.10.2011 | 18:58
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðargersemi og eitt af því fáa sem við megum sannarlega vera verulega stolt af sem þjóð. Það er ekkert sjálfgefið að 300 þúsund manna samfélag geti státað af slíkri heimsklassa-hljómsveit - þvert á móti er það heilmikið afrek.
Listafólkið sem skipar hljómsveitina er afreksfólk - alls ekki síður en handboltakapparnir okkar. Að baki árangri þeirra liggur margra ára linnulausar æfingar og nám - blóð, sviti og tár. Sjálfsagt gætu flestir meðlimir hljómsveitarinnar starfað við mun betri kjör í nafntoguðum erlendum hljómsveitum - en þökk sé hugsjón þeirra og tryggð við íslenska menningu, erum við svo lánsöm að fá að njóta starfskrafta þeirra og listsköpunar hér - í okkar stórkostlegu Eldborg (hvað svo sem segja má um Hörpu að utan).
En nú heyrist tísta í smásálum úr stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins - að í ljósi núverandi fjárlagahalla og niðurskurðar væri réttast að afnema ríkis-styrki til Sinfóníunnar og þar með leggja hana niður. Erum við virkilega svo snauð, bæði andlega og veraldlega að við getum ekki/viljum ekki halda á lífi megin-stoð lista og menningar á Íslandi? Ég held ekki - það eru til aðrar og skynsamari lausnir.
Ekki einu sinni menningarsnauðum Ameríkönum myndi detta slíkt í hug. Þar í landi frjálshyggjunnar njóta sinfóníuhljómsveitir opinberra styrkja úr National Endowment for the Arts.
Það er sorgleg staðreynd að margir líta á klassíska tónlist sem eitthvert snobb ríku elítunnar. Þetta er skelfilegur misskilningur - það geta ALLIR notið klassískrar tónlistar, óháð stöðu og stétt. Stór hluti tónleikaáskrifenda Sinfóníunnar er alþýðufólk og verkamenn sem kunna að vera fátækir af peningum en því ríkari í anda! Fólk með reisn. Ef ég fengi að ráða væri unnið að því að breikka ennfrekar þann hóp sem fær að njóta Sinfó með því að fjölga tónleikum úti á landi sem og að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum andlega næringu þeim að kostnaðarlausu.
Nóg er framboðið af upphafinni og forheimskandi lágmenningu, fótbolta og "America´s Got Talent" að engin undra er að fimmtungur drengja í 10. bekk er ólæs! Segjum hingað og ekki lengra og stóreflum tónlistarkennslu grunnskólabarna og gefum þeim þá dýrmætu gjöf að verða "læs" á tónlist og fagurfræði.
Áður en Sinfónían verður drepin legg ég til að ríkið hætti að styrkja fótboltalandsliðið og ríkis-kirkjuna! Þar fara tvær vita-gagnslausar stofnanir sem má fullyrða að séu mun meiri sóun á skattpeningum okkar en Sinfó. Segi það og skrifa.
...
P.S. Hér má sjá frumlegan flutning á fimmtu sinfóníu Beethovens - í beinni lýsingu íþróttafréttamanna og svo tekur dómarinn til sinna ráða!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvaðan kemur Michele Bachmann?
14.8.2011 | 17:36



![]() |
Enga samkynhneigða í herinn" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Af meintum "reverse rasisma" Páls Óskars
8.8.2011 | 19:49
Hin árlega gleðiganga Hinsegin daga er fagur vitnisburður um það besta í fari íslendinga. Við megum vera stolt og þakklát fyrir að búa í einu af frjálslyndustu samfélögum heims þar sem flestir eru sammála um gildi jafnréttis og mannréttinda minnihlutahópa. Þegar þriðjungur þjóðarinnar mætir með góða skapið og gleðina til þess að sýna samkynhneigðum stuðning, ást og staðfestingu á tilverurétti okkar bærast ólýsanlegar tilfinningar í brjósti hvers homma og hverrar lesbíu. Gleymum því ekki hversu stutt er síðan tilvera okkar var sveipuð þöggun, skömm og ótta.
Einn er sá eðal-hommi sem ber sennilega meiri ábyrgð en flestir aðrir á því að fá þorra þjóðarinnar á okkar band á undanförnum árum. Með einlægni sinni, hreinskilni og persónutöfrum, hefur Páli Óskari tekist að koma við hjartað á íslendingum svo um munar. Hann var því vel að því kominn að hljóta mannréttinda-viðurkenningu Samtakanna 78 þetta árið. Eins og hann benti réttilega á í lok göngunnar á laugardaginn stendur Gay Pride á Íslandi orðið fyrir meira en bara réttindabaráttu samkynhneigðra þetta er orðin fjölskyldu-þjóðhátíð ALLRA íslendinga sem láta sig frjálslynd viðhorf og mannréttindi varða.
Ekki eru allir sáttir
Auðvitað fyrirfinnast enn einstaklingar sem láta Pál Óskar og Gay Pride fara í taugarnar á sér. Það kom því vart á óvart að einhverjir ákváðu að misskilja, oftúlka og snúa útúr ummælum Páls í Sjónvarpsfréttaviðtali um hvíta gagnkynhneigða miðaldra karlmenn í jakkafötum, hægrisinnaða sem eiga peninga sem stundum eru með biblíuna í annari hendi og byssuna í hinni. Valinkunnir Mogga-bloggarar virtust taka þessi ummæli til sín og þóttu e.t.v. vegið að stöðu sinni og ímynd, þar á meðal Jón Magnússon hæstarréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður. Aðrir usual suspects eins og Jón Valur Jenson, þekktur öfgatrúarmaður og fordómapési, notfærði sér tækifærið og býsnaðist yfir meintum kostnaði Reykjavíkurborgar af gleðigöngunni.
Nú er það sem betur fer svo að flestir hvítir gagnkynhneigðir miðaldra karlmenn í jakkafötum hvar sem þeir standa í pólitík og hvort sem þeir eiga peninga eða ekki eru fordómalausir og sómakærir borgarar. Það eru ekki þeir sem létu ummæli Páls Óskars móðga sig heldur þessar fáu risaeðlur sem eiga erfitt með að sleppa takinu af forréttinda stöðu sinni og íhaldssömum viðhorfum. Þessum mönnum sem líður illa í frjálslyndu og opnu samfélagi þar sem þeir fá ekki að drottna. Feminismi , jafnrétti og fjölmenning er eitur í þeirra beinum. Og þegar biblíur og byssur blandast í málið geta afleiðingarnar orðið skelfilegar eins og sannaðist nýverið í Noregi. Raunar er eftirtektarvert að þeir bloggarar sem helst hafa kvartað undan ummælum Páls Óskars eru flestir hinir sömu og kvörtuðu hæst yfir þeim aðdróttunum að Anders Breivik væri kristinn hægriöfgamaður. Það voru nefnilega ekki skoðanir hans sem voru brenglaðar heldur einungis verknaðurinn, að þeirra mati og það var óásættanlegt að sverta þeirra fínu og fullgildu lífsskoðanir vegna verknaðs eins geðsjúklings sem af fullkominni tilviljun deildi skoðunum þeirra um trúvillinga, kynvillinga, útlendinga, kvenfólk og annað óæðra fólk.
Hrun feðraveldisins og sjálfsmynd karlmennskunnar
Ljóst er að með auknu jafnræði í samfélaginu hefur staða karlmannsins breyst. Þrátt fyrir að launamunur kynjanna á vinnumarkaði sé enn til staðar er það svo að karlar sitja ekki einir að valdastöðum í reykfylltum bakherberjum. Karlaklúbbarnir riða til falls. En til eru þeir karlar sem eiga erfitt með að aðlagast og finnast þeir jafnvel niðurlægðir. Við getum ekki og megum ekki horfa framhjá þeirri staðreynd að karlmennskan er í vissri tilvistarkreppu.
Þróunin hefur verið á þá leið að konur eru í miklum meirihluta þeirra sem útskrifast úr háskólum á meðan karlar hafa dregist aftur úr í menntun. Þetta leiðir óhjákvæmilega til þess að konur munu koma til með að hafa hærri laun en karlar og verða aðal-fyrirvinnur heimilisins á sama tíma og atvinnuleysi eykst hraðast meðal ungra karlmanna. Þetta særir stolt þeirra og þeim finnst að þeim vegið. Reiðin brýst m.a. út í karl-rembu og and-femínisma.
Unga karlmenn skortir tilfinnanlega jákvæðar fyrirmyndir. Í grunnskólunum fyrirfinnast varla lengur karlkyns kennarar og of margir feður taka alltof lítinn þátt í uppeldi sona sinna. Þegar svo Agli Gillzenegger er hampað sem fyrirmynd unglinga er orðið eitthvað verulega mikið að. Við verðum að gæta þess að hlúa betur að strákunum okkar, styrkja sjálfsmynd þeirra og hjálpa þeim út í lífið. Margir ungir karlmenn eiga um sárt að binda í dag og þeir tilheyra sko engum forréttindahópi þrátt fyrir að vera karlmenn. Þetta er sá hópur sem fær minnstan stuðning frá félags- og heilbrigðiskerfinu.
Atvinnuleysi og fátækt er hrikalegur bölvaldur sem nú ógnar heilli kynslóð. Við vitum að sá ótti, reiði, örvænting og tilgangsleysi sem herjar á ungt atvinnulaust fólk er hættuleg gróðrastíja fyrir öfga og hatur. Við verðum með öllum mætti að sameinast um að minnka atvinnuleysi og bæta félagsleg úrræði fyrir unga karlmenn áður en það er um seinan. Hættan er aðsteðjandi.
Elliheimili fyrir samkynhneigða
Í viðtali við DV talaði Páll Óskar um þörfina á sérstöku elliheimili fyrir samkynhneigða. Mörgum brá í brún og furðuðu sig á þeirri hugmynd, enda er markmiðið með réttindabaráttunni ekki aðskilnaður heldur samlögun. En við nánari athugun kemur í ljós að málið er flóknara en svo.
Viðtal við 77 ára gamlan homma birtist í dagskrárriti Hinsegin daga í ár. Þar lýsir hann því hvernig hann hafi notið þess að sækja kyrrðarstundir í Langholtskirkju í hádeginu þar sem hann naut samveru við aðra eldri borgara. Þetta breyttist allt eftir blaðaviðtal við hann í Morgunblaðinu árið 2007 þar sem hann opinberaði kynhneigð sína. Uppfrá þessu mætti hann gjörbreyttu viðmóti jafnaldra sinna í kirkjunni. Enginn tók undir þegar hann heilsaði né yrti á hann. Þá stóð fólk upp og færði sig þegar hann settist við borð eða kirkjubekk. Hann var flæmdur burt. Athugið að þetta var árið 2007...og ekki í neinum sértrúarsöfnuði heldur þjóðkirkju Íslands!
Hommar eru e.t.v. Í meiri hættu en aðrir á að einangrast í ellinni þar sem margir eiga ekki afkomendur, maka eða stórar fjölskyldur. Við vitum að hamingjusömustu gamalmennin eru þau sem bera gæfu til að njóta samvista við annað fólk sem það á samleið með. Sumir eldri borgarar stunda mikið félagslíf, dansæfingar og kvöldvökur og einhverjir eru jafnvel svo lánssamir að verða ástfangnir! Hvað er dásamlegra en það?
Hvers á einmanna homminn á Grund að gjalda?
![]() |
Mikil umræða um orð Páls Óskars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Viðstaddur mótmælin í Hong Kong
1.7.2011 | 13:33
Þar sem ég var staddur nálægt Victoria Park í Central hverfinu í Hong Kong í dag - komst ég ekki hjá því að verða var við mannfjöldann sem ýmist fagnaði eða mótmælti stjórnvöldum Kínverja. Þrátt fyrir að manni sýnist að lífskjör hér séu almennt mjög góð og hár lifistandard sé áberandi í þessari Mekka Kapítalismans í Asíu - er augljóst að margir eru ekki sáttir við sí-aukin áhrif kommanna í Beijing. Þrátt fyrir að Hong Kong sé sjálfstjórnar-svæði hafa menn áhyggjur af versnandi mannréttindum - svo sem málfrelsi og ritskoðunum. Eins eru íbúar uggandi yfir þróun fasteignaverðs sem gerir venjulegu fólki nánast útilokað að búa í Hong Kong og margt efnaminna fólk hefur þurft að flytja yfir til Kína þar sem lífsskilyrði hafa verið mun lakari. Þess má geta að í Hong Kong búa 7 milljónir manns á svæði sem telur um eitt þúsund ferkílómetra (1% af landmassa Íslands). Það þýðir um 7000 manns á ferkílómeter - en til samanburðar eru heilir 3 íbúar á ferkílómeter á Íslandi. Það skal því engan undra að þeir byggja þétt og byggja hátt!
Í gærkvöldi gekk ég um höfnina í Kowloon og virti fyrir mér ljósa-showið "Symphony of Lights" en þá eru skýjakljúfarnir baðaðir í ljósum sem er vægast sagt tignarlegt ásýndar. Vikudvöl mín hér hefur verið ógleymanleg í þessari ótrúlega kraftmiklu borg. Frábærar almenningssamgöngur, hreinlæti og vingjarnlegt fólk einkennir borgina. Á morgun tekur svo við löng heimferð með viðkomu í Ryadh, Sádí Arabíu og Brussel - tilvonandi höfuðborg okkar!
![]() |
Fagnað og mótmælt í Hong Kong |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Svanurinn í Hörpunni (myndband)
17.5.2011 | 07:46
Það var dásamleg upplifun að koma í Hörpuna og njóta frábærra tónleika Lúðrasveitarinnar Svansins, sem fagnaði 80 ára stafsafmæli sínu á síðasta ári.
Hljómurinn í Hörpunni er hreint stórkostlegur og hreinir lúðratónarnir umluku mann á alla vegu, ólíkt nokkru sem maður hefur upplifað á Íslandi fyrr og það mátti litlu muna að maður fengi gæsahúð. Þetta hús, þótt dýrt sé, á eftir að reynast Íslenskri menningu gríðarleg lyftistöng og komandi kynslóðum dýrmæt gersemi.
Það gladdi mitt gamla lúðrasveitarhjarta að sjá svo marga áhorfendur en ég leyfi mér að fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi fleiri mætt á lúðrasveitartónleika á Íslandi. Eldborgin var nánast fullsetin!
Og Svanurinn sveik ekki áhorfendur! Undir stjórn Brjáns Ingasonar hefur sveitin vaxið og tekið ótrúlegum framförum. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í sveitinni á undanförnum misserum og fjöldi ungra og stórefnilegra listamanna gera Svaninn að alvöru hljómsveit og svo miklu meiru en við höfum getað búist við af hefðbundinni lúðrasveit, hingað til. Þessi sveit gerir sko fleira en að spila "Öxar við ána!"
Hápunktur tónleikanna var án efa saxófón-konsertinn Rætur eftir Veigar Margeirsson sem saminn var sérstaklega fyrir saxófón-snillinginn Sigurð Flosason. Flutningur Sigurðar var hreint magnaður!
Ég gat að lokum ekki stillt mig um að lauma upp símanum og taka upp lokalagið sem var Star Wars syrpa eftir maestro John Williams. Það er auðvitað ekki hægt að búast við of miklum hljóð-og myndgæðum og þið afsakið vonandi hristinginn... en nokkurnvegin svona hljómar alvöru lúðrasveit!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Boeing 747-8 Ultimate Rejected Takeoff Test
16.5.2011 | 08:04
Hvað gerist þegar fullfermuð 747-8 þarf að hætta við flugtak á síðustu stundu og bremsurnar stignar í botn?
Pure Awesomeness...
7&Volume=.5"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Oklahoma vs. Dallas draumasería
16.5.2011 | 00:35
Það gleður mitt gamla Okie hjarta að OKC Thunder séu komnir í undanúrslitin í NBA. Mikið gæfi ég fyrir að upplifa stemmninguna þegar nágrannarnir í Oklahoma og Dallas takast á um sætið í úrslitunum. Þegar ég bjó í Oklahoma (og Thunder liðið hét Seattle Supersonics) gerði ég mér nokkrar ferðir niður til Dallas til þess eins að fara á Mavericks leiki. Fimm tíma akstur hvora leið var vel þess virði enda hvort eð er fátt skemmtilegra en að sigla á Lincoln Continental niður Tornado Alley. Those were the days.
Fyrsti NBA leikurinn sem ég fór á var í gömlu Reunion Arena höllinni í Dallas sem nú er búið að rífa. Mavs voru að spila við Denver Nuggets og ungur nýliði að nafni Dirk Nowitzki stal senunni ásamt þeim Steve Nash og Michael Finley.
Eftir að ég fluttist til Minnesota varð Timberwolves auðvitað liðið mitt og eitt er víst að bjartari tímar eru framundan þar...en þangað til er ekki annað hægt en að njóta veislunnar í Texas/Oklahoma.
(Aðrar ánægjulegar fréttir úr NBA í dag voru þær að forseti og framkvæmdastjóri Phoenix Suns kom út úr skápnum í dag og óskum vér honum til hamingju með það)
Er ekki við hæfi að hlusta á sjálfan Wolverine syngja Oklahoma! svona í tilefni dagsins.
![]() |
Sá mömmu dansa og skaut Oklahoma í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pale Blue Dot
14.5.2011 | 01:35
Eins og meistari Carl Sagan orðaði það: "Our planet...is a lonely spec in the great enveloping cosmic dark. In our obscurity...in all this vastness...there is no hint...that help will come from elsewhere to save us from our selves. Like it or not...the Earth is were we make our stand."
Því miður er ólíklegt að við finnum nokkurntíman ummerki um háþróað líf/siðmenningu utan okkar sólkerfis. Og jafnvel þó svo ólíklega vildi til...væri nánast ógjörningur að koma á samskiptum við slík lífform...hvað þá heimsækja þau. Lögmál náttúrunnar sjá til þess. Því mikilvægara er það fyrir okkur...að hlúa að plánetunni okkar. Einu mögulegu heimkynnum mannkyns...um aldir alda.
![]() |
Leita að lífi á öðrum hnöttum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Tveggja mílna löng biðröð í bíla-lúguna á nýjum "Kristilegum" hamborgarastað í Texas!
12.5.2011 | 21:50
Them Texans sure luuuuv their 'burgers!
Uppi varð fótur og fit í Dallas um daginn þegar hin vinsæla "In-N-Out Burger" keðja opnaði fyrsta veitingastaðinn austan Arizona. Keðjan hefur verið vinsæl í Kalíforníu undanfarin 20 ár og þykja sveittir borgararnir hið mesta lostæti.
Eitt af því sem gerir þessar búllur frábrugnar öðrum er það að á allar umbúðir utan um borgarana, frönskurnar og á gos-glösin, eru skrifaðar tilvitnanir í Biblíuna! Það geta því allir verið vissir um að "Jeezus approves these freedom fries". Sem er svosem ekkert vitlausara en spádómskökurnar á kína-stöðunum hehe.
En hvort íbúar Dallas hafi verið orðnir svona líka svakalega leiðir á McDonalds...eða hvort uppáhalds sjónvarps-predikarinn þeirra hafi sagt þeim að fara og fá sér heilagan borgara fylgir ekki sögunni... en sjón er sögu ríkari!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)